breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Ég nefndi þetta einmitt í andsvörum mínum við fjármálaráðherra. Það eru leiðir til að rökstyðja endurskoðun fjármálaáætlunar í þessu af því að það er ekkert skilgreint hvað er þjóðarvá, hvað er efnahagsáfall, hverjar eru prósentubreytingarnar í því sem myndi teljast efnahagsáfall. Ef ríkisstjórnin myndi segja að þessi lækkun á hagspám teldist efnahagsáfall þá er það einfaldlega fordæmisgefandi. Það eru ekki rök sem hægt er að andmæla sem slíkum af því að við vorum ekki með það í höndunum hvað teldist vera efnahagsáfall eða þjóðarvá áður en við hófum þetta ferli. Það er dálítið opið svigrúm til að segja: Þetta er það. Núverandi aðstæður eru það út af þessum atriðum. Það er tvímælalaust hægt að útskýra það betur. Að sjálfsögðu er hægt að bregðast við á þann hátt með endurskoðunargreininni. Ég kalla eftir rökstuðningnum á bak við það af því að ég finn hann ekki. Ég get útvegað slíkan rökstuðning, kannski heldur hann hjá fjármálaráði, kannski ekki. En hérna vantar allan rökstuðning. Ég veit ekki hvernig það heldur hjá fjármálaráði.
Við eigum að vera grunngildamiðuð en það er ekki einu sinni reynt að útskýra hvernig farið er eftir grunngildum í þessari breytingu. Eins og ég nefndi áður þá finnst mér það vera nokkuð öfugsnúin varfærni að gera hana svona eftir á. Ef þetta á að vera breyting á fjármálastefnu en ekki endurskoðun á fjármálastefnu þyrfti, með því ákvæði, að leggja fram nýja fjármálastefnu til næstu fimm ára, alveg eins og gengur og gerist með fjármálastefnu til að byrja með. Núna erum við í einhverju togi með (Forseti hringir.) túlkun á 10. gr. sem er breyting á fjármálastefnu sem er eitthvað allt annað en 10. gr. gengur út á, finnst mér.