149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[17:12]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og ætla að reyna að leiða næstu spurningu í framhaldi af svari hv. þingmanns. Í greinargerð eru færð rök fyrir því af hverju brugðist er við því sem snýr að því að horfa til lengri tíma. Hér er verið að fara í jafnvægi gjalda og tekna, þ.e. á núllið ef við tölum um það þannig. Svo er byggt inn þetta óvissusvigrúm þar sem ég met að við séum að læra af gagnrýni fjármálaráðs m.a. og að losa um þessa spennitreyju af því að við þurfum að horfa á sjálfbærni og stöðugleika til lengri tíma litið. En svo er spurningin: Hvað er skynsamlegt að gera? Halda sig við útgjaldaáformin? Þá eru það 10–12 milljarða ráðstafanir sem við þurfum að horfa á en það er í fjármálaáætlun. Hér er gengið út frá því að ekki sé gengið á óvissusvigrúmið heldur sé það til staðar ef forsendur fara til verri vegar en spáð er. Mér heyrðist á hv. þingmanni að honum litist ágætlega á (Forseti hringir.) þetta verkfæri. Ég spyr: Hefði það (Forseti hringir.) gjarnan mátt vera meira eða hvernig hefði mátt rökstyðja það hversu mikið það á að vera hverju sinni?