149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[17:21]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er einmitt þessi viðbót, útgjaldasvigrúmið, sem ég tel vera ágætisviðbót í þau fræði sem við vorum að fara yfir. Það vantar aðeins betri skilgreiningar þar á bak við. Jú, það er sú þumalputtaregla: Ef það fer verr en hagspár gera ráð fyrir má ganga á þetta óvissusvigrúm. En við erum svo ógagnsæ í því öllu þannig að ég held að við komum ekki til með að vita nákvæmlega hvort það sé að gerast, hvort verr gangi, eða hvort það er af öðrum ástæðum sem gengið verður á það, þ.e. ef það verður þannig. Ég er sammála því að þetta má, eins og ég nefndi áðan, líka ganga í hina áttina, að ef hagvöxtur er á blússandi uppleið, eins og gerst hefur, og miklu framar hagspám sé einhver bremsa á útgjaldahlið á móti til þess að ná betri afkomu. Ef hagspáin hefði verið nákvæm hefði afkoman væntanlega verið sett hærri í fjármálastefnu og þá fjármálaáætlun.