breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegur forseti. Mig langar kannski að hafa tvö meginstef til umræðu í þessari fyrstu ræðu minni um endurskoðaða fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar. Það eru þau mikilvægu grunngildi ríkisfjármálanna, eins og kveðið er á um í lögum um opinber fjármál, sem snúa að varfærni og sjálfbærni ríkisfjármála. Ég verð að viðurkenna að mér hefur blöskrað málflutningur meiri hlutans hér þegar ljóst varð að endurskoða þyrfti fjármálastefnu og þar af leiðandi gera verulegar breytingar á fjármálaáætlun sem er tiltölulega nýlega fram komin af hálfu ríkisstjórnarinnar. Bæði hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra, og raunar flestir forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, hafa talað um þetta eins og hér væri verið að vinna einhver stórkostleg efnahagsleg afrek og ríkisstjórnin væri að koma fram af einstakri ábyrgð í ríkisfjármálum.
Það verður dálítið hjákátlegt þegar haft er í huga að það er alveg sama hvernig á málið er litið, nákvæmlega sömu mistökin hafa verið gerð í hagstjórninni í stjórn ríkisfjármálanna nú og á síðasta hagvaxtarskeiði, á árunum 2003–2007/2008 að telja, og á hagvaxtarskeiðinu þar á undan. Þetta var einmitt það sem lögum um opinber fjármál var ætlað að taka á. Við sjáum að árleg aukning ríkisútgjalda á föstu verðlagi á þessum tímabilum er algjörlega sambærileg, bæði þegar við tökum hagvaxtarskeiðið frá 1994 til ársins 2000 og svo aftur hagvaxtarskeiðið frá árinu 2003 til 2008. Raunar er árleg útgjaldaaukning heldur meiri á þessu síðasta hagvaxtarskeiði en þá, enda var það yfirlýst markmið þessarar ríkisstjórnar að setja einhvers konar Íslandsmet í aukningu ríkisútgjalda.
Það er líka dálítið skemmtilegt að hafa í huga að Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið með stjórn ríkisfjármálanna á öllum þessum þremur hagvaxtarskeiðum, meira og minna í gegnum þau öll, og stærir sig um leið af stórkostlegum árangri sínum í ábyrgri stjórn ríkisfjármála. Ábyrgðarleysi Sjálfstæðisflokksins í ríkisfjármálum er algert og það er þá þrítekið núna. Er ekki sagt: Allt er þegar þrennt er? Það er kannski best að Sjálfstæðisflokkurinn láti fjármálaráðuneytið eftirleiðis vera. Það er ljóst að flokknum er ekki treystandi fyrir ríkisfjármálunum. Jafnvel eftir alla þá vinnu sem lögð var í lög um opinber fjármál, þar sem átti að herða á aðhaldinu, herða á aganum í kringum ríkisfjármálin, er það samt brotið utan af sér með öllum tiltækum ráðum og ný met slegin í útgjaldavexti. Þessi er ábyrgð Sjálfstæðisflokksins í ríkisfjármálum.
Það er nefnilega svo að það er ákaflega einfalt að stýra fjármálum ríkissjóðs Íslands á tímum efnahagsuppgangs. Hagkerfið okkar er það sveiflukenndasta í hinum vestræna heimi og við vitum það mætavel. Það hefur alltaf verið raunin hingað til að á tímum efnahagsuppgangs streyma fjármunir sem aldrei fyrr inn í ríkissjóð. Þá skiptir svo miklu máli að stjórnvöld hverju sinni gæti ráðdeildarsemi, sýni varfærni, einmitt af þeim sökum sem ég nefndi áðan í andsvörum við hv. þm. Björn Leví Gunnarsson, að okkur hættir til að vanmeta uppsveifluna og að sama skapi vanmeta niðursveifluna. Varfærni snýst um að hafa borð fyrir báru í ríkisfjármálunum, gæta að okkur í útgjaldavextinum, og í raun ætti með réttum hætti vel að vera hægt að gæta nægilegrar varfærni í uppsveiflunni, hafa jafnvel safnað upp svigrúmi í uppganginum til að takast á við tímabundna niðursveiflu eins og nú er. Það er annað sem er dálítið kómískt í þeirri umræðu allri, þ.e. að sú niðursveifla sem við horfum fram á virðist hvort tveggja í senn hjá hæstv. ríkisstjórn vera léttvæg og tímabundin en um leið einn mesti efnahagsskellur sem við höfum tekið á okkur á undanförnum 30 árum og þar af leiðandi nauðsynlegt að endurskoða fjármálastefnuna. Mér þætti ágætt að vita hvort er: Er þetta léttvæg tímabundin niðursveifla eða mikill efnahagsskellur sem kallar á endurskoðun á fjármálastefnunni? Hvort tveggja í senn getur það ekki verið.
Það sem er meira áhyggjuefni er þegar kemur að langtímasjálfbærni ríkisútgjalda. Það er að koma á daginn, sem varað var við strax þegar til þessa stjórnarsamstarfs var stofnað, að hér væri baneitraður kokteill á ferðinni þar sem ætti að reyna að lækka skatta á sama tíma og ný met yrðu slegin í útgjaldavexti, blásið til stórsóknar á öllum málefnasviðum, eins og það var kallað, þvert ofan í öll varnaðarorð og ekki bara minni hlutans á þingi heldur fjölmargra sérfræðinga, hagsmunaaðila sem vöruðu við því að það væri algerlega óábyrgt að treysta á samfellt 14 ára hagvaxtarskeið. Svo er talað eins og þessi þróun hafi komið mönnum algjörlega í opna skjöldu. Það er þá kannski lágmarkskrafa að gera til stjórnvalda á hverjum tíma að þau hafi lágmarksþekkingu á íslenskri hagsveiflu. Það er nefnilega svo að þegar íslenskt efnahagslíf hefur náð viðlíka ójafnvægi, eins og var augljóst á árinu 2017 fram á árið 2018, þar sem raungengi var í hæstu hæðum, þar sem á undan var gengið langt hagfellt hagvaxtarskeið en með mjög miklum launahækkunum og gengisstyrkingu krónunnar, hefur það alltaf — ég undirstrika alltaf, herra forseti — farið á sama veg. Það hefur alltaf verið fremur skammt í leiðréttinguna þegar sú staða er uppi. Það var nákvæmlega það sem Viðskiptaráð varaði við í umsögn sinni um fyrri fjármálastefnu þessarar ríkisstjórnar, sagði algerlega óraunhæft að treysta því að það færi öðruvísi nú enda erum við eitt sveiflukenndasta hagkerfi veraldar, þökk sé m.a. okkar ágætu íslensku krónu.
Maður spyr sig: Hví í ósköpunum sýndi ríkisstjórnin ekki meiri varfærni við það tækifæri? Hví í ósköpunum var ekki tekið mark á ítrekuðum aðvörunarorðum? Og hvernig dettur hæstv. fjármálaráðherra í hug að koma hér fram og lýsa viðbrögðum ríkisstjórnarinnar, nú þegar í óefni er komið, sem einhverju tímamótaafreki í efnahagsstjórn, þegar skollaeyrum hafði verið skellt við ítrekuðum aðvörunum á undanförnum misserum?
Það leiðir aftur hugann að langtímasjálfbærni ríkisútgjalda. Þegar búið er að auka ríkisútgjöld svo mikið sem raun ber vitni, og á að reyna að auka enn frekar inn í niðursveifluna sem nú er, hljótum við að spyrja okkur: Standa tekjustofnar ríkissjóðs undir þessu útgjaldastigi til lengri tíma litið, þegar búið er að stilla af eyðsluna miðað við hæsta hápunkt hagsveiflunnar og ætla svo ofan í það að reyna að halda áfram að auka útgjöldin að einhverju marki? Ég held að það hljóti að blasa við hverjum skynsömum manni að það sé algerlega óraunhæft að ætla að svo geti orðið. Enda sést það í endurskoðaðri fjármálastefnu þessarar ríkisstjórnar að ríkissjóður yrði í besta falli, miðað við mjög bjartsýnar efnahagsspár í ljósi stöðunnar sem nú er uppi, rekinn á núlli, mjög líklega í samfelldum hallarekstri í fjögur ár. Mér sýnist raunar einboðið að óbreyttu að ríkisstjórnin muni brjóta ákvæði laga um opinber fjármál um hallarekstur nema gripið verði til verulegra mótvægisaðgerða. Það er af einföldum ástæðum þegar horft er í hagstærðirnar eins og þær eru að þróast þessa dagana.
Sú hagspá sem við höfum nú í höndunum gerir ráð fyrir tiltölulega hóflegum samdrætti í ferðaþjónustu. Við sjáum umtalsvert meiri samdrátt vera að raungerast. Aðilar í ferðaþjónustu vara við því að ekkert í kortunum bendi til snöggs viðsnúnings á næsta ári heldur sé þvert á móti líklegra að næsta ár verði líka mjög mikil áskorun. Við gerum ráð fyrir því að þessi mikli skellur í ferðaþjónustunni ofan í skell varðandi loðnuvertíð, sem heldur er ekki útséð um hvað verður með á næsta ári, hafi engin önnur áhrif á hagkerfið, að aðrar greinar standi þetta af sér eins og ekkert sé. En við sjáum þvert á móti að bremsuförin í hagkerfinu eru að verða hverjum manni augljós. (Forseti hringir.) Án þess að grípa þurfi til of mikillar svartsýni er augljóst að niðursveiflan verður meiri en gert er ráð fyrir í núverandi hagspá, hún verður heldur langvinnari og ríkisfjármálin verða að taka mið af því.