breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Það er út af fyrir sig rétt ef menn vilja horfa á nafnvirði útgjaldanna að útgjöld hafa vaxið á undanförnum árum. Það er engu að síður þannig að þau hafa ekki vaxið mikið í hlutfalli af landsframleiðslu. Á sama tíma og við höfum séð útgjöld vaxa þá höfum við skilað 400 milljarða afgangi með óreglulegum liðum síðan 2014, 400 milljarða afgangi. Við höfum greitt upp skuldir, rétt um 700 milljarða af skuldum. Skuldahlutföll ríkisins eru allt önnur og betri en að var stefnt. Við höfum greitt yfir 100 milljarða inn á lífeyrisskuldbindingar. Svo koma menn hér og ætla að gera sig breiða eftir þennan árangur og segja: Menn hafa haldið illa á spilunum.
Eitt er að gagnrýna vöxt ríkisútgjalda en menn verða þá að sýna að það sé ósjálfbært eða orðið of íþyngjandi. En við erum ekki með nein merki um það þegar við skilum góðum afgangi og sjáum opinber gjöld sem hlutfall af landsframleiðslu (Forseti hringir.) ekki vera að vaxa. Og þrátt fyrir að sú mikla breyting sé að verða á hagkerfinu erum við enn að leggja upp með ríkissjóð í jafnvægi.