breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Ekki ætla ég að þykjast þess umkominn að kenna hæstv. fjármálaráðherra sitthvað um ríkisfjármálin, ég veit að hann þekkir þau mjög vel enda verið í fjármálaráðuneytinu um nokkurt skeið. Við lyftum grettistaki í að greiða niður ríkisskuldir á árunum 1995–2000. Við lyftum aftur grettistaki í að greiða niður ríkisskuldir á árunum 2004–2008 og enn og aftur tókum við til við að greiða niður ríkisskuldir á árunum 2013 og áfram. Einhvern veginn dúkka þær skuldir alltaf upp aftur. Annars væru þær væntanlega löngu upp gerðar. Og það er sveiflan í hagkerfinu, það er útgjaldaþensla ríkisins, sem hefur verið gagnrýnd svo mikið, sem veldur á endanum töluverðri skuldasöfnun þegar undan tekur að halla í hagkerfinu. Það er það sem ég er að vara við. Ég tel allt of bjartsýnar forsendur miðað við núverandi útgjaldastig að við höldum ríkissjóði í einhverju jafnvægi miðað við þann efnahagsskell sem við erum að taka á okkur. Þó að hann sé tímabundinn og þó að það sé engin ástæða til að örvænta til lengri tíma litið þá mun höggið verða meira en hér er gert ráð fyrir, eins og það hefur alltaf verið hingað til.