149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[18:20]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Í fyrra andsvari mínu minntist ég á öryrkja. Nú langar mig að minnast á eldri borgara, sem hv. þingmaður minntist líka á. Við sjáum að sú aukning sem á sér stað í fjármálaáætlun, sem verður til umræðu í vikunni, þeir fjármunir sem þangað eru settir mæta fyrst og fremst fjölguninni í þeim hópi, þannig að það er engin kerfisleg aukning inn í þann hóp. Það kemur fram í fjármálaáætluninni t.d. að 70% eldri borgara sem búa við lökustu kjörin eru konur og þarf sérstaklega að huga að þeim hópi hvað það varðar. Ég hef miklar áhyggjur af því, og það væri áhugavert að heyra skoðun hv. þingmanns á því, ljósi þess að við sinnum alls ekki hagsmunum eldri borgara með þeim hætti sem við ættum að gera, hvernig þetta verður eiginlega í framtíðinni. Á næstu 40 árum mun fjöldi eldri borgara hér á landi tvöfaldast. Það er mjög umhugsunarvert hvernig stjórnmál framtíðarinnar munu tækla þá stöðu. Maður hefur ástæðu til að vera nokkuð svartsýnn þegar kemur að því í ljósi þess að við gerum ekki (Forseti hringir.) nægilega vel í þeim málaflokki eins og staðan er í dag.