breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Eldri borgarar, þar er stærsti hlutinn konur og þær eru með lakasta lífeyrinn. En eldri borgurum hefur þó alla vega verið gefin smá hungurlús, 25.000 kr. frítekjumark á lífeyri. En síðan kemur 73% skerðing ofan á það sem eftir er. Þess vegna er alveg óskiljanlegt í því samhengi með hálfan á móti hálfum lífeyri, þegar ríkisstjórnin bauð upp í þann dans, það var fyrir þá sem eru með lífeyrissjóðsgreiðslur upp á yfir 500.000 kr. útborgaðar. En þeir sem eru þar undir fá ekki vera með. Það er stórfurðulegt að þarna er verið að gefa fólki allt frá 124.000–155.000 kr. á mánuði, fólki sem þarf ekkert á því að halda. Og hvaðan er það tekið? Úr vasa þeirra sem þurfa virkilega á því að halda.