breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er annað í þessu og það er að ef sveitarfélögin fengju útsvarið hjá þeim sem eru með fjármagnstekjuskatt, þeir fengju útsvarsprósentuna þar ofan á, sem allir aðrir þurfa að borga nema á einhvern undarlegan hátt eru þessir aðilar undanþegnir því, þá kæmu aldeilis peningar inn til að styðja við NPA. Og eins og maður segir: Það er eitt að tala um þetta kerfi, annað er að lifa í því, að vera inni í því. Fyrst ertu veikur eða slasaður og svo ertu eiginlega fjársjúkur vegna fjárhagsáhyggja vegna þess að kerfið er með innbyggðar skerðingar sem valda því að ekki nokkur einstaklingur getur reiknað það út frá degi til dags.