149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[18:53]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Þá ætti hæstv. ráðherra að fara að einhenda sér í það að bæta lífskjörin hjá þeim sem allra verst standa. Hér vitnar hann enn og aftur í hagspá. Við urðum að fara eftir hagspá. Það var margsinnis varað við því að það væri óráðlegt. Ég er ekki viss um að ég myndi einu sinni leggja í að setjast upp í bíl með hæstv. ráðherra vegna þess að þó að skilti meðfram vegum sýni 90 km hámarkshraða þá þýðir það ekki að í slyddu, í vondum birtuskilyrðum og með hálkuspá keyri maður á 90. Maður hægir á sér og keyrir á 60, 70. Það hefði ráðherra betur gert (Gripið fram í.)þegar hann tróð þessari efnahagsstefnu sinni í gegn.