breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Ég, ólíkt hv. þingmanni, tel einmitt rétt og allt í lagi að gagnrýna að verið sé að breyta þessari fjármálastefnu á miðju kjörtímabili, einfaldlega vegna þess að þetta átti ríkisstjórnin að segja sér. Stefnan er ekki sett bara fyrir hana sjálfa heldur ekki síst fyrir fyrirtæki, almenning í landinu, þannig að við getum búið við einhvern fyrirsjáanleika. Menn getur svo greint á og það hittist þannig á að núna, 14 mánuðum seinna, er hæstv. ráðherra að gangast við gagnrýninni sem við og fleiri, m.a. fjármálaráð, settu fram.
Ástæðan fyrir því að við höfum kallað eftir meiri útgjöldum er einfaldlega vegna þess að innviðir hafa verið að grotna niður og það kostar líka að búa í húsi sem er að hruni komið. En það er hins vegar hægt að afla tekna og Samfylkingin hefði ágætlega treyst sér til þess í uppganginum að afla bæði meiri tekna og skila meiri afgangi. Samfylkingin hefur aldrei í tengslum við fjármálaáætlun eða fjárlög lagt fram útgjaldaloforð nema vísa beinlínis í hvernig ætti að efna þau.
Ég er hins vegar hjartanlega sammála hv. þingmanni í því að nú verður ríkisstjórnin að spýta í og fara í ákveðna uppbyggingu. Ég aðhyllist keynesisma sem gengur út frá því að hagstjórnin sé sveiflujafnandi. Mér finnst gott að formaður Sjálfstæðisflokksins og hæstv. fjármálaráðherra sé núna að leggjast á sveif með okkur og kannski hefði viðtalið sem ég var að lesa við hann í Þjóðmálum áðan verið aðeins öðruvísi ef hann hefði farið í það í dag, en þegar það var tekið fyrir nokkrum mánuðum síðan.