breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni svarið. Hitt atriðið sem mig langaði til að koma inn á í þessum andsvörum mínum — ég vona að hv. þingmaður fyrirgefi mér að ég komi með spurningu úr svari við andsvari en mér þótti bara punkturinn svo áhugaverður að mig langaði að kalla eftir dýpri útskýringu á honum. Það sneri að því, ef ég skildi hv. þingmann rétt, að þó að ekki sé svigrúm til að bæta við skattlagningu á ferðaþjónustuna núna eftir að þrengt hefur að hefði það betur verið gert á fyrri stigum. Sér hv. þingmaður fyrir sér að menn stígi inn í mismunandi geira á mismunandi tímum með sérstöku álagi á tekjuskatt samanborið við það að taka flötu prósentuna gegnumgangandi af öllum og jafna?