149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[19:08]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Í umsögn 2. minni hluta fjárlaganefndar við fjármálastefnu 2018 segir, með leyfi forseta:

„Stöðugleiki er algengt orð í fjármálastefnunni og er notað 19 sinnum. Útskýringar á því hvernig fjármálastefnan tryggir stöðugleika eru hins vegar engar.“

Staðan núna er í einu orði sagt augljós. Fyrirsjáanleikinn var undirstrikaður af minni hlutum fjárlaganefndar í ótal ræðum og í ótal umsögnum utan úr samfélaginu í fyrra. Þrátt fyrir endalaus viðvörunarorð var ekki tekið í mál af hálfu stjórnarflokkanna að skoða málið betur. Í tillögunni er orðið stöðugleiki notað 13 sinnum. Frá því að núverandi stjórn tók við völdum hefur verðbólgan hækkað um 1,1 prósentustig, orðið hefur 44% hækkun á verðbólgu á ekki nema 14 mánaða tímabili. Það er auðvitað enginn öfundsverður af því að þurfa að taka að sér hagstjórn í þessu hagkerfi með sína örmynt þar sem tíðkast að gera ótrúlega marga hluti á vegu sem þekkist varla annars staðar. En ég vil samt meina að það sé slæm hugmynd fyrir þá sem ætla að taka að sér hagstjórn landsins að byrja á því að búa til stefnu þar sem ekkert raunsæi býr að baki.

Skilyrði fyrir því að setja nýja fjármálastefnu eru ef grundvallarforsendur fjármálastefnu bresta eða fyrirsjáanlegt er að þær muni bresta vegna efnahagsáfalla, þjóðarvár eða annarra aðstæðna sem ógerlegt er að bregðast við með tiltækum úrræðum. Það gengur ekki upp að halda því samtímis fram að hagstjórn á Íslandi sé góð og að grundvallarforsendur fjármálastefnu séu brostnar. Góð hagstjórn hlýtur að fela í sér að sníða sér ekki svo þröngan stakk að ekki þurfi nema eitt áfall til að það þurfi að endurskoða aðstæður. Umrætt áfall var vissulega stórt en það var ekki það stórt í samhengi ríkisfjármála og utan þess þá var það ekkert sérstaklega ófyrirsjáanlegt.

Það er með ólíkindum að ríkisstjórnin hafi ekki brugðist fyrr við fyrirsjáanlegu gjaldþroti WOW air. Loðnubresturinn var svo sem fyrirsjáanlegur að einhverju leyti líka, það hefur verið samdráttur ár eftir ár og er hægt að rekja það til hlýnunar sjávar. Það hversu veik fjármálastjórn landsins er sýnir sig í því að þolmörkin eru ekki meiri en svo að eitt fyrirtæki geti kollvarpað öllum forsendum hins margumrædda stöðugleika.

Um þessa tilteknu tillögu er ýmislegt að segja. Þetta er í fyrsta sinn síðan lög um opinber fjármál voru sett á sem gerð er fjármálastefna þar sem gert er ráð fyrir neikvæðri afkomu. Það er býsna merkilegt. Þótt það sé örlítið óvissusvigrúm verðum við að skoða þetta í samhengi við skuldastöðu ríkissjóðs. Hreinar skuldir ríkissjóðs eru í dag um 600 milljarðar, sem er um 21% af vergri landsframleiðslu. Skuldirnar eru samtals 800 milljarðar en svo eru endurlán og fleira. En það er ekki bara góð staða, það er lægra skuldahlutfall en flest vestræn ríki búa við. Við erum á svipuðum stað og Svíþjóð núna þar sem skuldahlutfallið er með því lægsta sem þekkist á Vesturlöndum.

Það er ákveðin lenska á Íslandi að halda því fram að ríkisskuldir séu í eðli sínu slæmar og maður heyrir jafnvel fólk með hagfræðimenntun halda því fram að ríkisrekstur sé eins og heimilisbókhald, þrátt fyrir að það er auðvitað sá grundvallarmunur á að flest heimili gefa ekki út sinn eigin gjaldmiðil. Ríkisrekstur er ekki eins og heimili. Ríkisskuldir eru ekki eins og skuldir heimila, reyndar eru ríkisskuldir beinlínis sparnaður einkaaðila. Það er því alveg ágætt að ríkið hafi einhverjar skuldir og ekki bara til þess að hafa skuldir heldur til að geta leyft sér að fjármagna verkefni sem annars yrði erfitt að fjármagna með öðru móti. Og auðvitað er þá frumforsendan að vextir á þeim skuldum séu lágir. En vextir af ríkisskuldum í dag eru frekar háir. Þeir hafa farið lækkandi, sem er ágætt. Hæstu vextir í dag eru um 8% og vextir almennt milli 6 og 7% þegar verðbólgan er reiknuð inn í verðtryggðu lánin. Það er rosalega mikil vaxtabyrði. Það er mjög óþægilegt að hafa svona svakalega mikla vaxtabyrði. Ég hef talað um það frá því að ég kom á þing að áherslan ætti að vera fyrst og fremst á því að ná vöxtunum niður frekar en að reyna bara að lækka skuldahlutfallið. Það helst að einhverju leyti í hendur, en áhersla á vexti hefði kannski breytt nálguninni sem tekin var. Það mætti skoða það t.d. sem tíðkast í Bretlandi, að bjóða upp á verðtryggð lán „on tap“, þ.e. á krana, sem eru með mjög lága framlegð, kannski 1%, sem myndi þá vera möguleiki fyrir fólk sem hefði ekki neitt annað við peningana að gera eða kæmi þeim ekki í betra verð en það. Þá væri alltaf eitthvert flæði mögulegt.

Ég nefni þetta bara vegna þess að mér finnst mjög merkilegt og til marks um aukið raunsæi hjá ríkisstjórninni að í þessari áætlun er gert ráð fyrir hallarekstri, að vísu að því gefnu að allt óvissusvigrúmið sé nýtt. Miðað við að við séum í niðursveiflu, eins og ýmislegt gefur til kynna, er spurning hvort ríkið eigi ekki, í ljósi sinnar góðu skuldastöðu og getu sinnar sem ríkis, að nota tækifærið til að auka fjárfestingar og viðhalda þannig þessum stöðugleika sem nefndur er 13 sinnum í tillögunni. Ég sé ekki alveg á þessari stefnu hversu mikilli sveiflujöfnun er hægt að búast við. Enda segir í tillögunni, með leyfi forseta: „Rauntímamat á þörf fyrir slökun í aðhaldi fjármálastefnu er háð verulegri óvissu.“ Og það er auðvitað rétt. Það er erfitt að sjá þetta fyrir jafnóðum. Það verður mjög áhugavert að heyra hvort þessari nýju stefnu fylgi einhver tilraun til að leggja mat á hversu mikið raunsæi býr að baki því mati sem við erum tilneydd til að vinna með. Ég hef kallað eftir því ítrekað að fá mælingar um nákvæmni þjóðhagsspáa, sem dæmi, vegna þess að í dag eru þær lagðar fram og ekkert sagt um t.d. hversu góðar þjóðhagsspárnar hafa verið undanfarin ár.

Ég get tekið undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um að ríkið ætti kannski ekki að vera með óhóflegar fjárfestingar á uppsveiflutímum, enda er aukningin á verðbólgu til marks um aðfangaskort í hagkerfinu og mikla framleiðsluspennu sem höfum séð að hefur í einhver ár farið lækkandi. En á móti kemur, og ég hef stutt við það, að fjárfestingarstig ríkisins er engu að síður aðeins hærra en góðu hófi gegnir vegna þess að áhrif hrunsins sjást enn þá víða í samfélaginu, t.d. í lélegu vegakerfi eða uppsafnaðri viðhaldsþörf og þess háttar. Þörfin knýr hreinlega á. Það gerir að verkum að núna í þessari niðursveiflu þarf ekki að gera jafn mikið og annars væri. En það borgar sig líklega gefa smá í og stunda sveiflujöfnun með eðlilegum hætti, nýta þessa niðursveiflu sem tækifæri til að búa til góðan rytma. Það væri afar slæmt að sjá einhvern samdrátt hjá ríkinu á þessum tímapunkti og við sjáum í rauninni ekki nákvæmlega hvernig og hvort það muni gerast fyrr en í haust með fjárlagafrumvarpinu nema hæstv. ráðherra geti upplýst okkur eitthvað um áætlanir sínar þar.

Óvissuþættirnir eru margir. Og eins og ég sagði áðan er það ekki öfundsverð staða að reyna að stýra hagkerfi sem þessu, eins og óstöðugt og það er og hefur verið sögulega. Á þessum tímapunkti hef ég því miður ekki forsendur til að meta betur áhrifin af stefnunni. Það á vonandi eftir að koma í ljós í gegnum meðferð nefndarinnar og umræður hér. En ég vona innilega að ekki verði farið á einhverju hundavaði yfir þetta í nefndarvinnu vegna einhverrar heimatilbúinnar þinglokapressu. Það er mjög mikilvægt að þetta sé unnið vel vegna þess að það sést að fjármálastefnan var ekki unnin nægilega vel síðast og við þurfum bara að anda aðeins ofan í kviðinn og taka því rólega. Þótt fólk þurfi kannski að fórna nokkrum fallegum sumardögum í að tryggja að þessarar fjármálastefnu muni ekki bíða sömu örlög eftir 14 mánuði og þeirrar síðustu og vera jafn mikil skýjaborg og hún var, þá verður bara að hafa það. Við verðum að taka því rólega og vinna þetta vel og ég treysti á að ágætir nefndarmenn í fjárlaganefnd geri það.