breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurningarnar. Fyrst þetta með stefnuna, ég held að það sé mjög skynsamlegt fyrir alla, og ekki síst ríkisstjórnir, að hafa stefnu og það á að undirbyggja stefnu mjög vel með bestu fáanlegu gögnum og taka tillit til margra hluta. Jafnframt felst auðvitað góð stefnumótun í því að gera líka ráð fyrir að upp komi alls konar hlutir og þá á að vera innbyggt í stefnuna fyrir fram hvernig við skuli bregðast. Það að stórt fyrirtæki fari á höfuðið gerist alltaf á einhverju árabili, það að loðna hverfi gerist alltaf á einhverju árabili og þess vegna geta menn byggt inn í stefnuna þessa hluti.
Hitt sem hv. þingmaður velti fyrir sér er hvort ekki væri erfitt að móta stefnu á grundvelli óstöðugs gjaldmiðils. Í það minnsta er hægt að svara því þannig að það gerir það ekki auðveldara. Það getur vel verið að það geri það nánast ómögulegt. Við vitum vel að það hafa alltaf verið, líka á undanförnum misserum, miklar sveiflur í gjaldmiðlinum og allar þessar sveiflur hafa áhrif, sumar til góðs, aðrar til ills, en það er mjög erfitt að byggja langtímaspár á og vera með innbyggðan svona stóran óvissufaktor. Það er einföld staðreynd.