breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Frú forseti. Já, ég hef líka heyrt þessa ágætu sögu sem var sögð af Hjálmari Gíslasyni frumkvöðli þar sem hann gerði það einmitt að umtalsefni að fólk í atvinnulífinu ritskoðaði sig fullmikið þegar það væri að tjá sig eða öllu heldur ekki að tjá sig um áhrif krónunnar á íslensk fyrirtæki og íslenska nýsköpun. Það minnir mig á aðra sögu um sama mál þegar forstjóri eins af þeim fyrirtækjum sem við erum öll svo stolt af og heitir Össur talaði um það í samhengi við nýsköpun að þetta væri svona eins og að sprotar skytu upp kollinum í jökulfarvegi og síðan kæmi jökulhlaupið alltaf, það vissu allir, og sópaði burtu öllum nýgræðingnum. Ég held að það sé (Forseti hringir.) gömul saga og ný að þó að við höfum svo sem lifað með krónunni lengi gætum við gert miklu betur (Forseti hringir.) og haft miklu heilbrigðara samfélag ef við losuðum okkur við hana.