breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið í ríkisstjórn síðan árið 2013. Á árinu 2013 náðum við okkur upp úr djúpri efnahagslægð, svo sannarlega var hægt að tala þar um efnahagsáfall, og í uppsveiflunni þegar enn var slaki í hagkerfinu hefðum við átt að byggja upp innviðina sem þurftu að þola niðurskurð, bæði innviðir í samgöngum en eins innviðir samfélagsins. Þá áttum við að byggja þá upp og nýta þær tekjur sem við höfðum.
En hvað gerði ríkisstjórnin þegar hún tók við, ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks? Hún byrjaði á því að taka úr sambandi fjármálaáætlun fyrri ríkisstjórnar, sem var einmitt um að byggja upp innviði, og lækka veiðigjöld, lækka skatta (Forseti hringir.) á leiðinni upp sem er arfavitlaus hagstjórn. Ef öðruvísi hefði verið tekið á málum væru innviðirnir, heilbrigðiskerfið, skólarnir, lögreglan og vegirnir, (Forseti hringir.) betur undirbúnir til að taka þeirri niðursveiflu sem nú er.