149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[21:51]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Auðlegðarskatturinn eins og hann var lagður á rétt eftir efnahagshrun var tímabundinn, já. Við fengum í ríkissjóð þegar hann var síðast innheimtur 12 milljarða kr. Það voru ýmsir tæknilegir gallar á þeim skatti eins og hann var lagður upp.

Og, já, ég myndi ekki vilja að við settum á auðlegðarskatt í þeirri mynd. Það er ekki þar með sagt að ekki megi skattleggja auðmenn. Við þurfum að horfa á ójöfnuðinn sem vex hér upp, sérstaklega á eignahliðinni, þannig að ef við settum á hóflegan auðlegðarskatt og tækjum íbúðarhúsnæði út fyrir sviga gætum við fengið sirka 7 milljarða kr. í kassann og þá mætti nýta t.d. til fjárfestinga í niðursveiflunni.

En mér skilst á hv. stjórnarliðum sem hér hafa talað, (Forseti hringir.) bæði í fjölmiðlum og úr þessum stóli, að það eigi einmitt að seinka fjárfestingum í niðursveiflunni.