149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[22:59]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni einmitt fyrir það að koma inn á þau áhrif sem við erum að sjá fram á hjá almenningi, fjölskyldum og fyrirtækjum, þau birtast okkur nú í ljósi þessarar miklu niðursveiflu, sérstaklega í ferðaþjónustunni og kemur illa við Suðurkjördæmi, það er alveg rétt hjá hv. þingmanni. Við sjáum uppsagnir á Keflavíkurflugvelli og þetta er svona að raungerast mjög hratt núna. Ég held að þetta komi til með að verða erfiðara í haust og vetur. Því miður eru þeir aðilar sem þekkja vel til í greininni svartsýnni á haustið og veturinn.

Ríkisstjórnin vinnur eftir hagspá, þjóðhagsspá. Það er samkvæmt lögunum og þannig er núgildandi fjármálastefna unnin. Hins vegar tel ég að ríkisstjórnin hafi ekki gætt nægilegrar varúðar, ef svo má segja, við beitingu þeirra, sérstaklega þegar litið er til þess hversu lengi hagvaxtarskeiðið hefur varað. Að mati sérfræðinga, eins og við þekkjum, er þetta lengsta hagvaxtarskeið efnahagssögunnar.

Það er líka náttúrlega ámælisvert að mínum dómi að menn skuli ekki taka tillit til þeirra varúðarorða sem voru sögð og lögð fram þegar stefnan var unnin í upphafi, sem sýnir það að hún entist ekki nema í 14 mánuði. Við horfum fram á mjög erfiða tíma, held ég, þegar kemur að ferðaþjónustunni, sem leggur mjög mikið til þjóðarbúsins. Þannig að, já, ég er sammála hv. þingmanni og segi að ég tel að ekki hafi verið gætt nægilegrar varúðar af hálfu ríkisstjórnarinnar hvað þetta varðar og allt of mikil bjartsýni ríkt í þeim efnum.