breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Það eru nokkur atriði sem mig langar að koma inn á í þessari ræðu minni í fyrri umr. um fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar, uppfærða frá fyrra plaggi. Ég geri í sjálfu sér ekki athugasemdir við endurskoðun fjármálastefnu telji ríkisstjórn ástæðu til að slík endurskoðun fari fram, en áhugaleysi stjórnarþingmanna á að taka þátt í þeim umræðum sem hér eiga sér stað vekur nokkra furðu. Maður verður að gefa sér að þegar ríkisstjórn finnur sig í þeirri stöðu, 14 mánuðum eftir að hafa fengið samþykkta upphaflega fjármálastefnu ríkisstjórnar, að þurfa að taka hana upp og endurskoða, sé lagt af stað með varfærna nálgun til að finna sig ekki í því í þriðja skipti mögulega innan kjörtímabils að þurfa að setja fram fjármálastefnu. Ég verð að viðurkenna að það slær mann sem svona heldur bjartsýnt, þó að ég voni að þjóðhagsspáin gefi rétta mynd eða á daginn komi að menn reynist sannspáir þar og ríkisstjórnin taki mið af þeirri spá sem þar er fram sett. Ég er þó hræddur um að við séum að horfa á töluverða áhættu hvað það varðar að hin varfærna nálgun sé ekki til staðar. Þá er ég fyrst og fremst að horfa á þá ætlan þjóðhagsspár að það verði ekki nema eitt ár í samdrætti og síðan verði efnahagskerfið komið í býsna góðan vöxt aftur strax næsta ár á eftir og síðan áfram.
Það er einfaldlega það margt í pípunum sem bendir til temprandi áhrifa á hagkerfið næstu misserin að ég er hræddur um að þetta gæti orðið snúið við að eiga þegar frá líður. Í því samhengi vil ég aðeins rifja upp ummæli sem hafa verið látin falla um núverandi fjármálastefnu og henni lýst sem spennitreyju sem stjórnvöld hafi sett sig sjálfa í. Ef ég man rétt er það hugtak tekið frá fjármálaráði sem er lögbundinn — er það ekki rétt munað, hv. þm. Ágúst Ólafur? — umsagnaraðili og verður áhugavert að sjá viðbrögðin núna þegar þessi fjármálastefna gengur til umsagnar fjármálaráðs. Þó að maður reikni með að fjármálaráð hafi fengið plaggið til umsagnar og skoðunar í síðustu viku, þó að verið sé að mæla fyrir því í dag, verður krafan engu að síður augljóslega sú að hlutir gangi mjög hratt í gegn hvað umsögn fjármálaráðs varðar. Ég vona að fjármálaráð leyfi sér samt, nægur er tíminn, að skila ígrundaðri, varfærinni og íhaldssamri afstöðu til baka því að forsendur fjármálastefnunnar eru, eins og segir í greinargerðinni, að fjármálastefnan sé með grunngildin fimm; sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi. Þetta er töluvert orðskrúð en maður verður að ganga út frá því að ætlanin sé að nálgast þetta með þessum hætti.
Eins og ég segi vil ég bara hvetja fjármálaráð til að taka sér þann tíma sem þarf, auðvitað er ekki ástæða til að draga neitt í þessum efnum, en ég held að við höfum meira gagn af ígrundaðri og góðri umsögn en einhverri sem er afgreidd á svolitlum spretti.
Það eru ein tvö atriði sem mig langar efnislega að koma inn á sem snúa að því sem þarna er undirliggjandi. Nú þegar þrengir að munu væntanlega margir leggja til, og ég er einn af þeim, að loks sé kominn tími til að skoða skattalækkanir af einhverri festu. Eins og það er orðað af þeim sem eru áhugasamir um róttæka skattheimtu veikir það tekjugrunninn en það skilur eftir súrefni í kerfinu fyrir fyrirtæki og heimili. Það er einhvern veginn þannig að alltaf virðist eitthvað mæla gegn lækkun skatta, hvort sem er á heimili eða fyrirtæki, en nú vil ég alla vega leggja það til að ríkisstjórnin, með þessa endurskoðun fjármálastefnunnar á borðinu, nálgist mál með þeim hætti að skilið verði eftir svigrúm til skattalækkana og þá umfram það sem rammað hefur verið inn í fjárlögum í fyrra og í yfirlýsingum, m.a. í tengslum við svokallaða lífskjarasamninga og þar fram eftir götunum.
Hitt atriðið sem ég vil brýna stjórnarflokkana, vonandi með stuðningi stjórnarandstöðuflokkanna, til að gera er að þegar þessi stefna verði tekin upp til endurskoðunar verði hún þannig endurskoðuð að svigrúm verði til þess að ganga til arðbærra framkvæmda, séu þær í rauninni á borðinu og færar, og þá megi menn ekki finna sig í þeirri stöðu — ég tek sem dæmi góðar og mikilvægar samgöngubætur. Menn þurfa að tryggja þegar svona endurskoðun á sér stað að menn skilji fjármálastefnuna ekki eftir þannig aftur að stefnan geti orðið arðbærum, góðum verkefnum fjötur um fót í stað þess að styðja við verkefni sem augljóslega væri skynsamlegt að ganga til ef ekki væri fyrir svokallaða fjármálastefnu.
Ég vil skilja þetta eftir hérna, að meirihlutaflokkarnir — af því að ég sé að hv. formaður fjárlaganefndar situr hér og hlustar andaktugur á þessa tímamótaræðu — hafi það í huga að menn finni sig ekki í þeirri stöðu, af því að þetta kom upp hér á þessu þingi í tengslum við samgönguáætlun, þá voru þau sjónarmið uppi að markmið fjármálastefnu settu hugmyndum um auknar framkvæmdir töluverðar skorður. Nú er lag að tryggja að slík fyrirstaða verði ekki því að augljóst er að þrýstingur á jarðvinnuenda verktakamarkaðarins er að minnka og það er ógrynni arðsamra verkefna sem menn vita að skynsamlegt væri að ganga til hvernig sem fjármögnun væri háttað.
Að endingu í ræðu minni langar mig að koma inn á að hér hefur verið nefnt reglulega síðasta árið að nauðsynlegt sé að ganga til þeirrar vinnu að meta hver árangurinn hafi verið og hvernig hafi gengið að framfylgja nýjum lögum um opinber fjármál, hvort allir hlutar þeirra séu til gagns eða hvort einhver hluti þeirra verðskuldi endurskoðun, þá bara út frá því að ná fram þeim markmiðum sem ætlunin var að ná fram, sem eru prýðileg heilt yfir. Ég beini því til þeirra sem á halda að þessari vinnu verði hraðað og hún unnin þannig lagað opin að allir komi sínum sjónarmiðum þar að. Því að mér þykir býsna margt í umræðu um framkvæmd laga um opinber fjármál benda til þess að þar megi ýmislegt laga og færa til betri vegar af þeim atriðum sem menn eru kannski að fá fyrstu reynslu af að reka sig á, ef svo má segja. Ég vil skilja þetta eftir hérna, að menn gangi til þessarar endurskoðunar og leggi mat á hvað hefur gengið vel og hvað illa og reyni að laga það sem illa hefur gengið en að endingu passa upp á að skoða hvort ekki sé svigrúm til skattalækkana og ekki loka á slíkt til að skilja eftir súrefni í kerfinu (Forseti hringir.) fyrir fyrirtæki og heimili annars vegar og síðan að fjármálastefnan setji ekki of þröngar skorður gagnvart opinberum arðbærum framkvæmdum.