breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni alveg prýðisgóða ræðu. Í fyrra andsvari langaði mig aðeins að velta því upp sem hv. þingmaður kom talsvert inn á í ræðunni varðandi skynsemi og svigrúm til skattalækkana á þessum tímapunkti. Ég verð að viðurkenna, og get tekið undir með hv. þingmanni um mikilvægi þessa, að þetta sé einmitt tímapunkturinn til að veita nauðsynlegt súrefni út í efnahagslífið í gegnum skattalækkanir, bæði til almennings og fyrirtækja. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður sé mér sammála um að það séu dálítið sérstök rök af hálfu fjármálaráðherra, sem skilgreinir sig til hægri í hinni pólitísku tilveru, að svarið við efnahagsniðursveiflu sé þá að belgja út grunnrekstur ríkissjóðs.
Nú er reyndar nokkuð ljóst að fjármálaáætlunin sjálf er nokkuð á reiki. Hún var ekki byggð á mjög traustum grundvelli, en þegar fjármálastefnan sem hún hvílir á brestur er ljóst að við munum sjá talsverðar breytingar á henni. Þar var gert ráð fyrir 185 milljarða útgjaldaaukningu ríkissjóðs í grunnrekstur og einum 15 milljörðum í auknar fjárfestingar á næstu fjórum árum, ef ég man rétt.
Mér þykir það dálítið sérstök nálgun hjá fjármálaráðherra, sem skilgreinir sig til hægri í tilverunni, að ætla að bjarga efnahagslífinu með því að stækka ríkissjóð enn frekar, blása upp báknið, ef svo mætti að orði komast. Væri það ekki miklu skynsamlegri efnahagsstefna að skapa frekar svigrúm með aðhaldssamri útgjaldastefnu til að lækka hér skatta, þar á meðal bankaskattinn sem ræddur hefur verið — tryggingagjöld og fleiri skatta mætti nefna þar til — en leggja ríkari áherslu á auknar fjárfestingar?