149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[23:23]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni fyrir andsvarið. Ég held að það sé einmitt mikið áhyggjuefni hversu mikið grunnreksturinn hefur þanist út undanfarin ár og í rauninni langt fram úr hófi fram ef við horfum á tekjuvöxt og annað slíkt. Það væri mun skynsamlegra að mínu mati að hafa aukna áherslu á fjárfestingu í opinberum verkefnum og reyna þá frekar að stíga nokkur skref til baka hvað rekstrarhlutann varðar.

Einhvern veginn virðist aldrei vera rétti tíminn til að lækka skatta. Í samdrætti vantar tekjurnar. Í þenslu vantar aðhaldið. Þessi jafnvægispunktur virðist koma og fara innan dagsins, ef ekki innan klukkustundarinnar þegar spýtan veltur. Ég held að margra hluta vegna væri skynsamlegt að auka í ríkisfjárfestingar hins opinbera því að nóg er af arðsömum framkvæmdum, en reyna þá að halda aftur af sér hvað rekstrarhlutann varðar.

Menn þekkja það auðvitað allir sem fylgjast hér með umræðu um fjárlög og þar fram eftir götunum, að sóknin í aukin útgjöld virðist óendanleg, en það hlýtur að koma að þeim tímapunkti, af því að nú erum við með skattpíndustu þjóðum af OECD-ríkjunum þegar tekið er tillit til hvernig lífeyrisskuldbindingar og lífeyriskerfin eru uppbyggð hjá þjóðunum. Út úr því verðum við að reyna að komast til að beina súrefni til heimila og fyrirtækja í landinu þegar herðir að.