149. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2019.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

953. mál
[23:25]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni svarið. Í síðara andsvari myndi ég vilja velta aðeins upp — af því að ég veit að hv. þingmaður hefur töluverða reynslu af því að starfa í raunhagkerfinu, sem er nokkuð sem þingmenn meiri hlutans mættu hafa meiri reynslu af. Ég veit að hann þekkir hvernig kaupin gerast á eyrinni. Við erum að vinna hér með hagspár sem gera ráð fyrir því að aðaldráttarklárinn í hagkerfinu á undanförnum árum, ferðaþjónustan, taki á sig verulegt högg, jafnvel vel inn á næsta ár, en að aðrir þættir hagkerfisins sigli áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Ég hjó eftir því að hv. þingmaður nefndi stöðuna hjá jarðvinnuverktökum, sem eru gjarnan kanarífuglinn, getum við sagt, þegar kemur að byggingariðnaði og byggingariðnaður er gríðarlega stór þáttur í íslensku efnahagslífi. Þegar byggingariðnaður fer að hökta finnum við mjög fyrir því, bæði í atvinnustigi en ekkert síður í tekjum fyrir ríkissjóð.

Hefur hv. þingmaður trú á því að byggingariðnaðurinn sigli í gegnum þessa niðursveiflu eins og ekkert hafi í skorist? Það væri þá sennilega í fyrsta skipti sem það gerðist.