breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni andsvarið. Í sögulegu samhengi er ekkert sem bendir til þess. Það sem gefur mönnum væntanlega svolitla von um að byggingarbransinn haldi sjó er það ófremdarástand sem skapast hefur hér á undanförnum árum út af misvægi í uppbyggingu á dýrum þéttingarreitum annars vegar og skorti á hagkvæmu húsnæði hins vegar, sem mættu þá vera í úthverfum eða jaðarbyggðum höfuðborgarsvæðisins.
Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki lagst í nógu djúpa greiningu á þessu. Sagan segir nei, en ófremdarástandið, sem er að nokkru marki heimatilbúið, gæti ýtt undir að byggingargeirinn héldi sjó meira en alla jafna en á móti. Ef t.d. verulegur (Forseti hringir.) samdráttur verður í túrismanum mun það hafa veruleg áhrif (Forseti hringir.) á húsnæðisþörf, bæði út frá breytingum á Airbnb og síðan (Forseti hringir.) gistilausnum starfsmanna sem eru hér tímabundið.
(Forseti (ÞorS): Forseti minnir á tímamörk.)