149. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2019.

störf þingsins.

[10:20]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Segjum að hér færist farþegaflugvél í innanlandsflugi annað hvert ár, að hér dæju margir tugir einstaklinga í flugslysi á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Segjum að hér geisaði farsótt sem legðist aðallega á ungt fólk og að á tíu daga fresti dæi einstaklingur undir fertugu. Segjum að banaslys í umferðinni myndu margfaldast miðað við það sem nú á sér stað.

Herra forseti. Ég er sannfærður um að samfélagið allt væri á öðrum endanum og að ekki yrði þverfótað fyrir viðbrögðum hvers konar, rannsóknum og greiningum, og að umræðuþættir snerust eingöngu um þessi skelfilegu áföll og slys. En lítið gerist í þá áttina því að hér erum við að tala um einstaklinga sem deyja vegna ofneyslu lyfja. Um 30 ungir einstaklingar deyja hér á landi vegna þessa. 30 talsins á Íslandi. Okkar litla samfélag er í sárum vegna þessa og fjölskyldur í molum.

Þetta er fólk úr öllum lögum samfélagsins, krakkar sem líður illa eða eru að kljást við fíknisjúkdóm eða einfaldlega að fikta. Við búum í ansi firrtu samfélagi stundum. Hraðinn er mikill og samanburðurinn við aðra vegna samfélagsmiðla getur verið erfiður. Unga fólkinu okkar líður oft illa, er með kvíða og þunglyndi. Tilgangsleysi læðist að sumum og tölvur og tæki geta virkað sem tímabundinn flótti en eru í raun og veru fangelsi.

Herra forseti. Verkefnin í stjórnmálunum gerast vart stærri. Vinnum saman að bættri líðan og hættum að líta fram hjá dauða tuga Íslendinga.