félagsleg aðstoð og almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Til að svara fyrri spurningu hv. þingmanns er gert ráð fyrir því að þetta frumvarp kosti nákvæmlega 2,9 milljarða, sem er það fjármagn sem við höfum til ráðstöfunar samkvæmt fjárlagafrumvarpi yfirstandandi árs. Ráðgert er að 2,5 milljarðar renni til þess að gera breytingar á krónu á móti krónu skerðingunni og 400 milljónir til þess að gera breytingar þannig að við horfum á hvern mánuð fyrir sig en ekki á árið í heild sem er seinni hluti frumvarpsins.
Hvað varðar síðan fjárhæðirnar eru 2,9 milljarðar til ráðstöfunar á yfirstandandi ári. Ég vil leiðrétta hv. þingmann þegar hann segir að það hafi verið skorið niður um síðustu áramót til öryrkja. Það er ekki rétt. Aukningunni, sem ráðgert var að væru 4 milljarðar, ofan á þær greiðslur sem örorkulífeyrisþegar eru með í dag, var breytt í 2,9 milljarða í meðförum þingsins. Það er ekki niðurskurður vegna þess að upphæðin stendur, sú sem var með. Hins vegar var líka hækkað vegna verðlagsbreytinga upp á 3–4% þannig að það var aukið til örorkulífeyrisþega á yfirstandandi ári um 2,9 milljarða plús 3–4%.