149. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2019.

félagsleg aðstoð og almannatryggingar.

954. mál
[10:54]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég heyri að hæstv. ráðherra hefur lært af fjármálaráðherra sem sagði að ekki ætti að hætta við eða fresta framkvæmdum heldur færa þær til. Nú heyri ég það á ráðherra að það að stúta krónu á móti krónu að fullu kostar 7,5 milljarða, samkvæmt því sem ráðherra segir. Þeir peningar eru til, hæstv. ráðherra, þeir eru til vegna þess að sá hluti svarta hagkerfisins sem tengist Airbnb, einungis sá hluti, er í kringum 8 milljarðar. Ef ríkisstjórnin tæki á sig rögg og færi að innheimta þegar álögð gjöld, ekki nýja skatta, myndi ráðherrann fá fyrir restinni af þessu og eiga afgang. Það gæti verið gott ef ríkisstjórnin tæki á sig rögg og færi að innheimta gjöld sem þegar er búið að leggja á og nýta þau til góðra verka eins og þessara.