félagsleg aðstoð og almannatryggingar.
Herra forseti. Ég heyri á öllu að hæstv. ráðherra hefur ekki lesið skýrslu nefndarinnar frá 2016 þannig að ég þarf líklega að setja mig aftur á mælendaskrá að lokinni þessari ræðu (Félmrh.: Og lesa …) og lesa skýrsluna fyrir ráðherrann þannig að hann heyri það bara beint hvernig skýrslan hljómaði og hvernig gengið var frá málinu. Hann er hér með fullyrðingar sem standast ekki, því miður, en það er ekkert nýtt. Auðvitað grípa menn í alls konar hálmstrá. Ég efast ekkert um að það væri þægilegra fyrir ráðherrann ef sá sem hér stendur legðist á árarnar með honum. (Gripið fram í.) Það yrði kannski til þess að eitthvað hreyfðist, en ég … (Gripið fram í.)
Hæstv. forseti. Er hægt að hafa hemil á ráðherranum? Ef ég legðist á árar með ráðherrann myndi örugglega ganga vel, en á þessu blaði sést að við hæstv. ráðherra erum ekki að róa í sömu átt. (Gripið fram í.) Ég vil fara alla þessa leið af því að það er hægt, af því að nú er tími, það er tímabært. En auðvitað getur ráðherrann rölt um þingsalinn og verið með einhver strákapör, það kemur ekki við nokkurn mann nema kannski hæstv. forseta sem á að hafa góðan skikk á málum. En það bætir ekki þetta mál nema síður sé. Ef það er einhver gæðastimpill á mál ríkisstjórnarinnar að Miðflokkurinn sé á móti þeim, þá tökum við bara að okkur þá gæðastýringu. Það er ekkert vandamál og það veitir ekki af því. Það er náttúrlega dæmigert að hér skuli stíga á stokk ráðherra Framsóknarflokksins sem er búinn að brjóta öll sín skip, búinn að ganga bak öllum sínum kosningaloforðum. Þetta er ekki merkilegt plagg, (Forseti hringir.) herra forseti. En ég á enn sjö sekúndur eftir af tímanum. Forseti verður að …
(Forseti (GBr): Ég bið hv. þingmann afsökunar. Það er misræmi í stjórnkerfinu, sem er ekki gott.)