félagsleg aðstoð og almannatryggingar.
Herra forseti. Þeim bótaflokki var komið á til að lyfta fólki sem var undir ákveðnu tekjulágmarki upp, þ.e. þeim sem ekki náðu upp í tiltekna upphæð. Ég verð að viðurkenna að ég man ekki hver sú tiltekna fjárhæð var árið 2009, (Gripið fram í.) ég er ekki með það í kollinum. En þá fengu þeir sérstaka framfærsluuppbót ofan á þær greiðslur sem þeir voru með sem voru þarna undir þessari fjárhæð til að koma þeim upp í þá tölu.
Já, auðvitað nýttust þeir peningar þessu fólki. Þetta varð til þess að greiðslan þeirra hækkaði sem því nam. Hefði ekki verið út af sérstöku framfærsluuppbótinni hefðu þeir verið með bætur sem voru þarna undir. Þannig að sjálfsögðu nýttust þeir peningar því fólki, vegna þess að það jók framfærslutekjur þeirra sem voru með greiðslur sem voru annars undir því lágmarki. Ég hlýt því að svara spurningu hv. þingmanns með því að segja: Já, þeir peningar nýttust fólki.