sjúkratryggingar.
Virðulegi forseti. Mig langar að nefna eitt örstutt og reyna að gera það á svokölluðu mannamáli frekar en lagamáli. Við fljóta yfirferð á málinu gæti litið svo út að verið væri að draga úr réttindum fólks til persónuverndar þegar reyndin er sú að það er einmitt þveröfugt. Mér finnst rétt að nefna það hérna í pontu sérstaklega vegna þess að um er að ræða uppfærslu til samræmis við frekar viðamiklar breytingar sem hafa orðið á lagaumhverfi persónuverndar á Íslandi upp á síðkastið, mjög mikið til styrkingar. Persónuvernd hefur aldrei verið betri á Íslandi en í dag í kjölfar samþykktar þess frumvarps sem við settum nýlega um persónuvernd. Í kjölfar slíkra breytinga geta aðferðirnar breyst sem eru notaðar til að tryggja réttindi borgaranna og sér í lagi verður þá að nefna 9. gr. í nýju persónuverndarlögunum sem fjallar um skilyrði fyrir meðferð og vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga. Þar er tölusettur listi yfir skilyrði sem þarf til þess og þarf að uppfylla eitt þeirra skilyrða ásamt öðrum skilyrðum laganna.
Í 1. tölulið er talað um upplýst samþykki hins skráða fyrir því að vinna megi með upplýsingarnar. Það er ein leið sem hægt er að nota til þess að vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar, en síðan eru aðrar leiðir líka tölusettar sem krefjast þá ekki þessa upplýsta samþykkis. Þegar kemur að upplýstu samþykki ríkisstofnunar sem á að veita borgara þjónustu er ekki jafnt samband. Borgarinn á ekki við þá stofnun á jafnræðisgrundvelli. Ef stofnunin nýtist einvörðungu við meint upplýst samþykki, þ.e. skriflegt samþykki skjólstæðings síns, er ekki alveg á hreinu að það sé veitt af fúsum og frjálsum vilja vegna þess að undir yfirborðinu gæti skjólstæðingurinn hugsað með sér. Ja, ókei, ég verð að gefa þetta samþykki. Og þá verður að spyrja hvort það sé yfir höfuð gefið af fúsum og frjálsum vilja. Matið er að svo sé ekki, þannig að í staðinn fyrir það er betra að takmarkanirnar sem stofnunin þarf þá að búa við hvað varðar vinnslu og meðferð upplýsinganna séu háðar hinum lagaskilyrðunum sem duga til vinnslunnar. Það veitir betri vernd en að ætlast til þess að skjólstæðingur í þessari stöðu veiti skriflegt samþykki. Því ber að fjarlægja þetta skilyrði úr lögunum hér og þar, um skriflegt samþykki, sem við snöggan yfirlestur virðist vera til þess að draga úr persónuverndarréttindum einstaklingsins þegar reyndin er sú að frekar sé verið að fjarlægja góða afsökun sem stofnunin gæti notað til þess að vinna með upplýsingarnar á annan hátt en hin skilyrðin, þau tölusettu í 9. gr. persónuverndarlaga, kveða á um.
Þetta er, eins og kannski heyrist á þessari ræðu, lagalega flóknara en einföld yfirferð málsins. Það er ekki einfaldlega nóg að lesa þetta til að átta sig á þessu. Og þar sem okkur Pírötum er mjög annt um persónuvernd og friðhelgi einkalífs fannst mér rétt að þetta kæmi fram, af því að maður veit að það eru borgarar í þessu landi sem lesa sér til um það sem er í gangi hér og þá er mikilvægt að skilaboðin séu skýr, að hér sé verið að uppfæra lög til samræmis við betri persónuverndarlög sem eru hugsuð öðruvísi og betur en þau gömlu.