rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu sem fjallar um takmarkaða ábyrgð hýsingaraðila. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Daða Ólafsson og Eirík Jónsson, formann nefndar um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis, frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Fróða Steingrímsson frá Félagi rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði, Guðrúnu Björk Bjarnadóttur frá STEF – sambandi tónskálda og eigenda flutningsréttar og Rán Tryggvadóttur frá höfundaréttarnefnd. Nefndinni bárust umsagnir og önnur erindi frá ýmsum aðilum, m.a. atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Blaðamannafélagi Íslands, Félagi rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði, höfundaréttarnefnd og sameiginleg umsögn frá STEF, Innheimtumiðstöð gjalda, Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda og Sambandi flytjenda og hljómplötuframleiðenda.
Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði tilteknar breytingar á lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. Breytingunum er ætlað að stuðla að rýmkun tjáningarfrelsis með því að fella brott hlutlæga ábyrgð hýsingaraðila og þrengja skyldu þeirra til að fjarlægja eða hindra aðgang að gögnum samkvæmt 1. mgr. 14. gr. laganna.
Frumvarpið byggist á störfum stýrihóps sem mennta- og menningarmálaráðherra skipaði á grundvelli þingsályktunar nr. 23/138, um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Frumvarpið er samið af nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis sem var m.a. falið að fara yfir frumvarpsdrög stýrihópsins. Með frumvarpinu er lagt til að ný efnisregla komi í stað gildandi 2. töluliðar 1. mgr. 14. gr. laga um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu þannig að mælt verði fyrir um að skilyrði fyrir ábyrgð hýsingaraðila sé að hann hafi beina vitneskju um að um sé að ræða ólöglega starfsemi eða upplýsingar og, að því er varðar skaðabótaábyrgð, að honum sé kunnugt um staðreyndir eða aðstæður svo ljóst megi vera að um ólöglega starfsemi eða upplýsingar sé að ræða.
Hvað varðar almenna ábyrgð hýsingaraðila á efni er það meginregla að þeir séu sem milliliðir ekki ábyrgir fyrir efni sem þeir hýsa. Í 2. tölulið 1. mgr. 14. gr., samanber 15.–17. gr., laganna er kveðið á um víðtækar undantekningar frá þeirri meginreglu. Með frumvarpinu er ætlunin að breyta þessum undantekningum til samræmis við útfærsluna á þessum tilskipunum í öðrum Evrópulöndum.
Samkvæmt gildandi fyrirkomulagi ber hýsingaraðila að fjarlægja eða hindra aðgang að efni berist honum tilkynning um meint höfundaréttarbrot. Meint höfundaréttarbrot er ekki endilega raunveruleg vitneskja um höfundaréttarbrot. Lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu fela m.a. í sér innleiðingu á tilskipun 2000/31/EB um tiltekna lagalega þætti þjónustu, einkum rafrænna viðskipta. Gildandi lagaákvæði ganga lengra en tilskipunin hvað varðar undantekningar á áðurnefndri meginreglu um ábyrgðarleysi milliliða og setja tjáningarfrelsi ríkari skorður en nauðsynlegt er.
Til umræðu hefur komið hvort þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu geti orðið til þess að viðbragðsferli vegna vistunar ólögmæts efnis verði tímafrekara og torveldara en ella fyrir rétthafa og þjónustuveitendur. Nefndin telur svo ekki vera og telur þær breytingar sem lagðar eru til á 14. gr. laganna vera til þess fallnar að einfalda og skýra reglur um það hvenær þjónustuveitandi ber ábyrgð á því efni sem hann hýsir og hvenær hann skuli grípa til ráðstafana. Með breytingunni verður þjónustuveitendum skylt að taka niður efni þegar fyrir liggur bein vitneskja um að um brot sé að ræða. Breytingin er til þess fallin að draga úr vafa um skyldu hýsingaraðila til að fjarlægja eða hindra aðgang að efni.
Við umfjöllun nefndarinnar kom til umræðu hvort rétt væri að lögfesta þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu þar sem ný höfundaréttarlöggjöf er í farvatninu í Evrópusambandinu. Fram komu sjónarmið um að sú löggjöf gæti haft í för með sér miklar breytingar á því umhverfi sem frumvarp þetta varðar.
Evrópuþingið hefur samþykkt nýja höfundaréttarlöggjöf, samanber tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2019/790/ESB, sem felur í sér umtalsverðar breytingar, m.a. hvað varðar ábyrgð milliliða sem veita ákveðna þjónustu á netinu. Það á þó ekki við um sams konar þjónustu og fjallað er um í tilskipun 2000/31/EB sem innleidd var með lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu en þeirri tilskipun er ekki breytt með hinni nýju. Nýja tilskipunin snýr að efnisveitum en ekki hefðbundnum hýsingaraðilum eins og þeir eru skilgreindir í gildandi lögum. Efnisveitur eru í tilskipuninni skilgreindar sem fyrirtæki sem aðallega, eða sem hluta af aðalstarfsemi sinni, geyma og veita almenningi aðgang að umtalsverðu magni af höfundaréttarvörðu efni sem þau flokka, starfrækja, birta auglýsingar um og hagnast af. Ljóst er að þarna er ekki um að ræða þjónustuveitanda sem hýsir gögn í skilningi 14. gr. laga um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.
Tilskipunin sem um ræðir var samþykkt af Evrópusambandinu í apríl og tekur gildi 7. júní nk., sem sagt eftir tvo daga. Frá þeim degi hafa ríki Evrópusambandsins tvö ár til að innleiða ákvæði hennar. Nefndin vekur líka athygli á því að tilskipunin mun ekki öðlast lagagildi á Íslandi fyrr en hún hefur verið tekin upp í EES-samninginn samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og innleidd í íslenskan rétt með formlegum hætti, eins og alltaf er með Evróputilskipanir. Hvorki er ljóst hvort né hvenær af því verður þannig að nefndin telur að getgátur um slíkt geti ekki ráðið för við lagasetningu.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Bryndís Haraldsdóttir, Brynjar Níelsson og Oddný G. Harðardóttir skrifa undir álitið með fyrirvara sem þau hyggjast gera grein fyrir í ræðu. Undir álitið rita sem sagt Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, Smári McCarthy, Þorsteinn Víglundsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Ég ætla að nota nokkrar mínútur til að fjalla um að tortryggni gagnvart þessu máli er skiljanleg. Þetta er mjög flókinn málaflokkur, það hvernig taka skuli á höfundaréttarbrotum á netinu. Í rauninni á þessi tilskipun um rafræn viðskipti sem kom frá Evrópusambandinu, hin svokallaða, með leyfi forseta, „e-Commerce Directive“, sér aðdraganda sem má rekja alveg til dómsmáls sem var rekið í Bandaríkjunum 1991, hins svokallaða CompuServe-máls, þar sem komið var á þeirri meginreglu í bandarískum rétti að milliliðir sem væru að hýsa upplýsingar frá þriðju aðilum væru ekki ábyrgir fyrir því efni nema í undantekningartilvikum. Þetta var síðar tekið upp í Bandaríkjunum sem lög í kafla 230 í Communication Decency Act, þ.e. fjarskiptasiðalög ef ég reyni að snöggþýða enskuna. Sambærileg ákvæði voru tekin upp í Evrópusambandinu með þessari tilskipun, 2031/EB. Nálgunin er alltaf að reyna að finna jafnvægi milli þess að tryggja annars vegar að þegar um höfundaréttarbrot er að ræða sé gerð krafa um að eigendur efnisins taki efnið niður og það með skjótvirkum og eðlilegum hætti og hins vegar að koma í veg fyrir misnotkun af því tagi að einhverjir nýti sér þetta ákvæði til að ritskoða tímabundið efni sem hefur verið sett á netið. Vissulega eru afleiðingar við því að misnota ferlið en stundum hefur það verið þannig, að vísu aldrei á Íslandi svo ég viti til en erlendis, að það ferli hafi verið misnotað í pólitískum eða viðskiptalegum tilgangi. Með því að nálgast útfærsluna sem önnur Evrópuríki hafa tekið upp með því að gera skýrari kröfu um að þetta sé raunveruleg vitneskja um raunverulegt höfundaréttarbrot frekar en einföld tilkynning frá einhverjum aðila er verið að girða fyrir megnið af mögulegri misnotkun en samt er enn þá opið fyrir því að réttmætir aðilar sem eiga efni geti gert kröfu um að efnið sé tekið niður.
Þarna er í rauninni kjarni málsins. Svo lengi sem um augljósan rétthafa er að ræða er ferlið algjörlega óbreytt. Eina tilfellið þar sem þetta er ekki eins með breytingunni sem hér um ræðir er þegar einhver þriðji aðili sem er ótengdur verkinu tilkynnir um brot og þar fram eftir götunum. Þannig skilning hef ég lagt í þetta og það er skilningurinn sem ég fékk m.a. frá sérfræðingum sem komu fyrir nefndina.
Ég held að tortryggni gagnvart þessu máli sé ekki endilega á rökum reist. Ég veit líka að til staðar er alltaf ákveðin aukaleg tortryggni þegar um er að ræða höfundaréttarmál sem Píratar eru fylgjandi. Þar er einhver saga sem væri áhugavert að rekja en það er kannski ástæða til að nefna að hvorki ég né Píratar almennt eru á móti höfundarétti heldur vilja bara að hann sé uppfærður í takt við nútímann og taki skýrt mið af öðrum réttindum. Það nær þetta frumvarp að gera og þess vegna er mér ljúft og skylt að styðja það með þeim hætti sem ég hef rakið. Ég ætla ekki að láta þetta verða lengra að sinni en legg til að málið verði samþykkt.