rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.
Virðulegi forseti. Ég má til með að fjalla örstutt um þetta mál. Þetta er mjög gott mál sem Píratar hafa aðhyllst frá upphafi, þ.e. að breyta þeirri klausu í lögum sem gerir það að verkum að hægt er að senda inn tilkynningu til að taka út efni án þess að farið sé yfir hvort umrætt efni sé á einhvern hátt brotlegt við höfundarétt. Fram kemur í umsögnum einhverra sem sendu inn álit um málið, samkvæmt minnisblaði ráðuneytisins, að engin dæmi séu um að þetta hafi verið misnotað eða að þessu hafi verið beitt af rangri ástæðu. Það kann að vera tilfellið á Íslandi, á þessu afskaplega litla hagsvæði, en það er ekki tilfellið erlendis. Um aldamótin, mig minnir að það hafi verið árið 2000, tóku gildi lög í Bandaríkjunum sem skammstöfuð eru DMCA, Digital Millennium Copyright Act, og voru þau lög í rauninni um það sama og verið er að afnema hér. Þau fólu í sér sömu kvöð, þ.e. ef einhver setti upp myndband á Youtube eða tónlist inn á einhvern vef eða hvaðeina, texta inn á vef, það skiptir ekki máli, var nóg fyrir einhvern annan úti í bæ að segja bara: Þetta er brot á höfundarétti. Og efnið var strax tekið út. Síðan var kannski farið að skoða hvort brotið hefði verið raunverulegt eða ekki.
Hægt er að færa einhver rök fyrir því að svona þurfi þetta að vera vegna þess að höfundaréttarbrot séu svo ægilega hræðileg brot. Þá myndi ég segja að tjáningarfrelsið væri sömuleiðis ægilega mikilvæg réttindi. Sömuleiðis myndi ég benda á að þetta sé samt sem áður algjörlega á skjön við það sem gert er ráð fyrir t.d. í réttarfari. Þar er fólk saklaust þar til það er dæmt sekt. Ekki er gert ráð fyrir að einhver sé sekur strax og einhver annar bendir á hann og ásakar hann.
Ástæðan fyrir því að löggjafar víða, í Bandaríkjunum sem og hér og á meginlandi Evrópu, hafa hingað til einhvern veginn ekki litið á þessi rök sem mjög marktæk, held ég, ég get mér þess til, að sé í fyrsta lagi misskilningur á því hvernig áhrif höfundaréttarbrot hafa í raunveruleikanum og sömuleiðis hvernig internetið þarf að virka til að tjáningarfrelsið sé í heiðri haft. Það var svo sem ekkert mál í gamla daga að framfylgja höfundarétti á hinn klassíska máta, ekki þannig, þar til fundin var upp einhver tækni til að afrita verk eins og kassettur, eins og við köllum það á hræðilegri íslensku. Á þeim tíma var mikill ótti, t.d. í Bretlandi, við það að kassettur myndu tortíma tónlist, að fólk myndi bara hætta að búa til tónlist. Það sama gerðist þegar grammófónninn kom til eða plötuspilarar, óttast var að fólk myndi bara hætta að halda tónleika. Það sama kom upp þegar internetið kom til, að fólk myndi bara hætta að búa til kvikmyndir, þætti, tónlist og þess háttar. Ég bendi bara á þá staðreynd að svo er ekki, þvert á móti er þetta mjög blómlegur iðnaður, fyrir utan það að kominn er annars konar iðnaður, eins og tölvuleikir, sem samkvæmt mínum heimildum er orðinn stærri iðnaður en kvikmyndir.
Hvernig getur höfundaréttarbrot kálað þessum iðnaði? Hvers vegna er þá meira af tónlist en nokkru sinni fyrr? Hvers vegna eru fleiri þáttaraðir gerðar en nokkru sinni fyrr? Kenningin stenst ekki. Internetið mun ekki kála hugverkagerð. Maður á ekki endilega að nota sín eigin dæmi til rökstuðnings í pontu en ég ætla samt að gera það í þetta sinn. Ég kann að búa til tónlist, ég kann að búa til hugbúnað, ég kann að skrifa texta. Það er u.þ.b. allt sem ég kann, mér til viðurværis, og það sem ég kann til að afla mér tekna varðar höfundarétt. Mig langar ekkert til að verða atvinnulaus í framtíðinni. Móðir mín er kvikmyndagerðarmaður. Faðir minn er hljóðmaður. Mig langar heldur ekkert til að gera þau atvinnulaus eða rústa iðnaði þeirra. Mér finnst mikilvægt að hafa það í huga vegna þess að það er ofurótti, ýktur ótti, meðal höfundaréttarsamtaka gagnvart því að internetið eða frjálst flæði upplýsinga muni einhvern veginn ganga að iðnaðinum dauðum. Svo er ekki og það er staðreynd. Það er ljóst. En auðvitað þarf þessi iðnaður að breytast, eðlilega, alveg eins og allur iðnaður breytist þegar skyndilega verða byltingar í þeirri tækni sem varðar tiltekinn iðnað, byltingar á borð við internetið, sem er eiginlega ekki hægt að líkja við neina byltingu frá því að ritað mál var fundið upp nema þá kannski prentvélina. Meira að segja er í því tilviki erfitt að gera samanburð vegna þess að internetbyltingin er einfaldlega miklu viðameiri.
Auðvitað þarf iðnaður að breytast, það er bara sjálfsagt. Ég skil að það sé vont. Auðvitað er það vont. Hvernig er hægt að komast hjá því? Auðvitað er það vont en góðu fréttirnar eru að það er að gerast. Þessi iðnaður er ekki að leggjast af. Hann þarf að breyta starfsháttum sínum. Fólk sem býr til efni, býr til hugverk, þarf að finna nýjar leiðir, finnur nýjar leiðir og hefur fundið nýjar leiðir til að afla tekna af vinnu sinni, sem er mikilvægt og samkvæmt stefnu Pírata, bara svo það komi fram.
Ástæðan fyrir því að við viljum afnema hluti eins og þá sem hér er lagt til að verði afnumdir, er sú að þetta brýtur í bága við önnur mikilsverð réttindi sem skipta líka máli. Það skiptir alveg máli að fólk sem býr til hugverk njóti tekna af vinnu sinni. Það skiptir verulegu máli. En tjáningarfrelsið skiptir líka máli. Það skiptir líka máli að þegar fólk tekur þátt í einhverjum samræðum, t.d. heitum, pólitískum samræðum á netinu, eins og ég hef aldeilis gert í gegnum tíðina og fleiri hér inni, er mjög mikilvægt að þær samræður fái að vera ótruflaðar af einhverjum handahófskenndum árásum á grundvelli höfundaréttarlaga. Það hefur kannski ekki gerst hérlendis, enda er Youtube ekki hýst hér eða hinir miðlarnir sem hafa verið mest notaðir í dægurþrasi um umdeildustu málin, eins og trúarbrögð, siðferði og þess háttar. En á internetinu hefur þetta verið misnotað mjög mikið, og á mörgum vefsetrum sem hafa milljónir, ef ekki tugir milljóna eða hundruð milljóna notenda er ógerningur fyrir þjónustuveitandann, t.d. Facebook, Youtube eða Google, að fara handvirkt yfir það hvað séu réttmæt brot og hvað séu ekki réttmæt brott. Með öðrum orðum, það þarf að sjálfvirknivæða það einhvern veginn og það ferli getur aldrei orðið sanngjarnt, a.m.k. ekki samkvæmt svona lögum.
Það eru mörg ár síðan ég var í álíka umræðum og ég er í núna, en á sínum tíma var frekar dæmigert að einhver kæmi fram með skoðun, t.d. þá að guðleysingjar væru ekki siðlausir, eða að einhver trúarrit innihéldu hatursáróður og ofbeldishvatningar. Eða öfugt, að einhver trúaður vildi segja eitthvað ljótt um guðleysingja eða hvaðeina. Þá hófust linnulausar árásir frá fólki sem var heitt í hamsi, taldi sig vera í rétti, taldi sig vera að gera rétt með öllum þeim verkfærum sem stóðu því til boða í löggjöfinni að saka einhvern um höfundarréttarbrot, og út fór efnið. Það var frekar dæmigert og gerðist mjög oft. En auðvitað eru þessi vefsetur ekki hýst á Íslandi og þess vegna gerist þetta ekki jafn oft samkvæmt lagabókstafnum hér. Aftur á móti ber okkur skylda til að hafa lagabókstafinn eins og hann á að vera og hann á ekki að vera eins og hann er núna. Hann á að vera miklu frekar eins og hann verður þegar þetta frumvarp verður samþykkt.
Það er ekki hægt annað en að nefna að þetta frumvarp er til komið að hluta til vegna IMMI-stýrihópsins, sem er til kominn vegna IMMI-þingsályktunarinnar, sem samþykkt var með öllum greiddum atkvæðum árið 2010 og var lögð fram af þáverandi hv. þm. Birgittu Jónsdóttur. Sá málflutningur sem birtist í þessu frumvarpi hefur lengst af þótt róttækur. Að það sé ofboðslega róttæk pæling að vernda líka tjáningarfrelsi og gera ekki alveg hvað sem er til að vernda höfunda gegn höfundaréttarbrotum. En það gleður mig að sjá að það er ekki lengur róttæk pæling, það gleður mig að sjá að það er næstum því sjálfsagt og næstum því nógu mikill skilningur á því, ekki alveg nógu mikill, en við erum á réttri leið með þessu frumvarpi og því styð ég það.
Mér fannst rétt samt að fara aðeins yfir samhengi málsins vegna þess að þótt við séum hér að tala um íslenska löggjöf getum við ekki gert ráð fyrir því að áhrif íslenskrar löggjafar sjáist í heimi þar sem næstum því allt efni er hýst annars staðar en á Íslandi. Þetta hefur verið vandamál og við erum að endurspegla rétta lausn á því vandamáli.