149. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2019.

rafræn viðskipti og önnur rafræn þjónusta.

494. mál
[14:56]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Bara mjög stutt. Mig langar aðeins að fara yfir það sem þingmenn Pírata hafa einnig farið yfir, að réttindin sem verið er að vega og meta eru annars vegar réttur hugverkahafa, réttilegur réttur þeirra til að hagnast á hugverkum sínum, hagnast á þeim hugverkum sem þeir búa til, hagnast á þeim hugverkum sem þeir hafa keypt. Þetta er gríðarlega mikilvægt að tryggja og verður að tryggja.

Hinum megin, ef á að framfylgja þeirri höfundaréttarlöggjöf sem hefur verið í gangi og virkaði og gætti meðalhófs að einhverju leyti á þeim tíma áður en internetið kom, ef við ætlum að framfylgja henni í dag, á tíma internetsins, verðum við að setja upp veggi á internetinu, takmarka þar af leiðandi upplýsinga- og tjáningarfrelsi, og við verðum að njósna um nettraffík. Friðhelgin er farin þannig að þetta er það sem við erum að horfa á.

Hvað ef við getum verndað friðhelgina, verndað tjáningar- og upplýsingafrelsið og á sama tíma geta eigendur hugverkaréttinda hagnast á hugverkunum? Það er náttúrlega hið fullkomna ástand. Þegar við Píratar komum inn á þing fyrst bentum mikið á þetta og þá var það byrjað að gerast. Við sáum þetta svolítið í ákveðnum lögum, sáum hverjir voru lengst komnir í því jafnvel þótt hægt væri að nálgast efnið ókeypis og ólöglega á internetinu í gegnum „torrent“-streymi og alls konar aðrar leiðir. Og hvaða iðnaður var lengst kominn í því að geta samt hagnast á hugverkaréttindum sínum? Það voru tölvuleikjaframleiðendur. Það er ekkert skrýtið að það hafi verið tölvuleikjaframleiðendur sem lifa og hrærast í hinum rafræna heimi. Þeim hafði tekist það, bæði í gegnum spjaldtölvurnar þar sem maður kaupir, er þröngvað inn eða fer inn í mjög vel aframmað svæði, og svo fundu þeir ákveðin viðskiptamódel utan um það við hvers konar kringumstæður fólk er tilbúið að borga. Það eru mismunandi forsendur. Stundum borga menn leikina fyrir fram. Stundum sitja notendur uppi með auglýsingar, stundum borga þeir til að geta flýtt því sem er að gerast í leiknum eða fengið einhvers konar samkeppnisforskot á þá sem þeir eru að keppa við o.s.frv. Þetta fundu tölvuleikjaframleiðendur fyrstir út.

Þar á eftir, þegar við Píratar komum fyrst inn á þing, 2013, var tónlistariðnaðinum að takast þetta. Við vorum komin með Spotify. Við sáum að frá 2012 hafði torrent-streymi á tónlist, þ.e. ólöglegt niðurhal á tónlist, minnkað um 80% á nokkurra ára tímabili. Þetta var byrjað að gerast þar.

Framleiðsla á kvikmyndum og alls konar öðru myndefni, þáttaröðum og svoleiðis, var að byrja, var aðeins komið af stað. Þeir voru ekki alveg búnir að finna það, eru það ekki heldur í dag en allir eru að færa sig þangað. Fyrirtækin sem framleiða efni veita aðgang að því rafrænt. Það er bara ekki orðið jafn gott og aðgengilegt og miðlægt og Spotify og aðrar tónlistarveitur hafa sinnt. Það er nákvæmlega það sem við bentum alltaf á, að þetta er þjónustuvandamál, þ.e. „piracy“ — hver er íslenska þýðingin á „piracy“? (Gripið fram í.) Ólöglegt niðurhal, við skulum hafa það. (Gripið fram í.) Það eru mótmæli úr sal. (Gripið fram í.) „Piracy“, þetta er þjónustuvandamál, þ.e. ef fólk fær þjónustu með því viðmóti sem það vill er það þar. Það er það sem við höfum tekið eftir. Prófið að fara á torrent-síður í dag, þið finnið enga tónlist. Menn nenna ekkert að standa í svoleiðis veseni þar. Sumir nenna enn þá að standa í því þegar kemur að myndefni. Sjálfur hef ég ekki gert það mjög lengi, bara vegna þess að ég nenni ekki að standa í því. Það er nóg af efni annars staðar en sumir gera það samt. Það er miklu meira úrval þar er mér sagt.

Við erum að komast á þann stað að við getum verndað tjáningarfrelsið okkar, upplýsingafrelsið okkar, friðhelgi einkalífsins okkar á sama tíma og hugverkahafar græða á hugverkaréttindum sínum. Við erum að færast mjög hratt inn í þennan fullkomna heim hvað þetta varðar. Sjáum til hvað gerist þegar fólk getur farið að prenta í þrívíddarprentaranum sínum Ferrari-líki sem það setur yfir Löduna sína eða eitthvað. Það er næsti bardagi sem ég veit ekki hvernig á eftir að enda.