149. löggjafarþing — 116. fundur, 4. júní 2019.
réttur barna sem aðstandendur.
255. mál
Herra forseti. Já, það er stundum sem maður gleðst innilega í hjartanu yfir málum sem fara í gegn og mig langar til að hrósa hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir að hafa haft frumkvæði að þessu máli. Þetta er í rauninni lítið mál en þó svo gríðarlega stórt af því að það varðar grundvallarrétt barna til að vera höfð með í ráðum, að rætt sé við þau við alvarleg veikindi eða andlát foreldra.
Þetta er mikið framfaraskref. Til hamingju, Alþingi.