sjúkratryggingar.
Forseti. Þetta frumvarp felur í sér breytingar á því með hvaða hætti Sjúkratryggingum er heimilt að vinna persónuupplýsingar um einstaklinga. Eins og fyrra málið sem við ræddum áðan er frumvarpið liður í aðlögun nýrra persónuverndarlaga að íslenskum lögum og breytingin sem gerð er með þessum lögum er sú að samþykki teljist ekki lengur viðeigandi eða nægilegir réttargrundvöllur fyrir heimild til vinnslu persónuupplýsinga af hálfu Sjúkratrygginga þegar einstaklingur veitir samþykki fyrir slíkri vinnslu. Liður í því að sækja opinbera þjónustu af hans hálfu er samþykki í raun ekki óþvingað. Því fer betur á því að upplýsingaöflunin fari einungis fram á grundvelli lagaheimildar en ekki samþykkis einstaklingsins. Því er áskilnaður um samþykki einstaklingsins felldur úr lögum og þess í stað sett í lög að upplýsa skuli viðkomandi um vinnsluna. Með því er tryggt að stofnunin geti aðeins unnið persónuupplýsingar á grundvelli skýrrar lagaheimildar en ekki á grundvelli óskýrs samþykkis.