störf þingsins.
Í dag eru 2.445 dagar síðan fullvalda þjóð gekk til kosninga. Um var að ræða ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort nýja stjórnarskráin, sem 25 manna stjórnlagaráð, kosið af Alþingi, hafði samið. Var greitt atkvæði um hvort sú stjórnarskrá skyldi lögð til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu var spurt um fleira. Það var spurt hvort hin fullvalda þjóð vildi að í nýrri stjórnarskrá yrðu náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu í þjóðareign, hvort þjóðin vildi að í stjórnarskrá væri ákvæði um þjóðkirkju, hvort heimila ætti persónukjör í kosningum til Alþingis, hvort atkvæði kjósenda af öllu landinu skyldu vega jafnt og loks hvort tiltekið hlutfall kosningarbærra manna gæti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu.
Nærri 70% kjósenda lýstu því yfir að hin nýsamda stjórnarskrá skyldi lögð til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Rúmlega 80% vildu náttúruauðlindir í þjóðareign, 57% vildu ákvæði um þjóðkirkju, tæplega 80% vildu aukið persónukjör, tæplega 67% vildu jafnt vægi atkvæða allra landsmanna og loks greiddu rúm 73% atkvæði með því að tiltekinn fjöldi manna gæti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu.
Herra forseti. Þessi nýja stjórnarskrá okkar fór í gegnum ritrýni Feneyjanefndar og var fullunnin í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem skilaði frumvarpi um nýja stjórnarskrá inn í þingsal vorið 2013. Þá hófst mikið málþóf stjórnarandstöðuflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, en svo merkilega vill til að sá flokksleiðtogi sem stýrt hefur málþófi hér á Alþingi undanfarnar vikur gegn orkupakka þrjú, leiddi einmitt líka málþóf þess tíma í félagi við hæstv. ráðherra Bjarna Benediktsson gegn þeirri nýju stjórnarskrá sem þjóðin hafði kosið.
Herra forseti. Ég legg til að við klárum málið því að annað er ekki sæmandi fullvalda þjóð. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)