149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

störf þingsins.

[10:06]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Sú staða sem hefur skapast í efnahagslífi okkar við það högg sem ferðaþjónustan hefur tekið á sig núna á að vera okkur áminning um mikilvægi þess að fjölga möguleikum til verðmætasköpunar í okkar samfélagi og efla samkeppnishæfi landsins. Því er mikilvægt við þessar aðstæður að fara í arðbærar innviðafjárfestingar af miklu meiri krafti en kannski hefur verið lagt upp með í þessu tilliti. Það er mikilvægt að örva hagkerfið með slíkum fjárfestingum og það eru tækifæri á þeim vettvangi sem þarf að nýta. Þar má nefna til að mynda byggingu Hvammsvirkjunar. Það væri afar hagfellt fyrir Landsvirkjun að fara af stað núna í byggingu Hvammsvirkjunar sem er, eftir því sem ég best veit, svo til fullhönnuð og tilbúin til þess að fara í framkvæmdir, hefur farið í gegnum umhverfismat og er mjög hagkvæmur virkjunarkostur. Það er sannarlega þörf fyrir það rafmagn sem þaðan myndi koma til að skapa verðmæti fyrir samfélagið.

Landsátak í samgöngumálum í stærri skrefum en jafnvel er verið að horfa til, með öllum þeim aukningum sem boðaðar hafa verið á þeim vettvangi, á grundvelli gjaldtöku, væri þjóðhagslega mjög hagkvæmt núna. Þar eru bæði verkefni innan höfuðborgarsvæðisins og úti um allt land. Það er grundvallaratriði að við slíkar útfærslur verði gætt jafnræðis meðal landsmanna þannig að gjaldtakan taki til allra landsmanna. Við eigum mikil tækifæri og auðvitað er mikil þörf innan höfuðborgarsvæðisins þar sem komið hafa fram upplýsingar um að framkvæmdaþörfin sé á annað hundrað milljarðar í almenningssamgöngum og stofnbrautum. Síðan vitum við af ástandinu úti um allt land.

Ég tel, virðulegur forseti, að nú þegar Speli hefur verið skilað til ríkisstjórnarinnar og sú arðsama framkvæmd er komin í fulla eigu þjóðarinnar, Hvalfjarðargöngin, eigum við að taka (Forseti hringir.) þá reynslu með okkur í þessi skref, stofna slíkt fyrirtæki, til að mynda með lífeyrissjóðum og sveitarfélögum, og gera langtímasamninga um stórframkvæmdir á þessum vettvangi.