störf þingsins.
Virðulegi forseti. Marcus Ball lögmaður kærði Boris Johnson fyrir brot í opinberu starfi, fyrir að ljúga því að Bretland borgaði Evrópusambandinu 350 milljónir punda á viku fyrir aðild. Markmið lögmannsins er að fá ráðamenn til að hætta að ljúga, því ekkert annað virðist virka.
Viðbrögð Boris Johnsons voru fyrirsjáanleg, miðað við aðila máls sem hefur sér engar málsbætur. Það er reynt að draga tilgang málaferlanna í efa með því að segja að lögsóknin sé fjármögnuð af pólitískum andstæðingum eða erlendum aðilum. Málsvörnin er skoðanastríð um almenningsálitið, dómstóll götunnar virkjaður gegn fyrirsjáanlegri niðurstöðu dómstóla. Sendiboðinn er skotinn eða grafið undan réttarríkinu á einn veg eða annan.
Hvar hef ég séð þá taktík áður? Hvernig var þetta aftur? Skipulögð njósnastarfsemi hjá Báru. Vondu útlensku kröfuhafarnir, ekki einu sinni íslensku kröfuhafarnir, þeir voru ekki vondir, þó voru þeir þarna á meðal. Hvernig var ráðist á fjölmiðlana sem birtu fréttirnar? Hvernig var allt öðrum að kenna en þeim sem laug?
Þetta er kjarninn í því að falsfréttir og skoðanastríð virkar. Þetta er aðferðin sem við þurfum öll að læra að gagnrýna. Það er ekki málsvörn að ráðast á sendiboðann. Það er ekki málsvörn að finna annarlegar hvatir fyrir málsókn. Ef ásakanirnar eru rangar er alltaf til málefnaleg vörn.
Innan Alþingis hef ég heyrt þegar valin eru rök sem henta manns eigin markmiðum, óháð því hvort þau rök standist skoðun. Það er einhvers konar vinsældakeppni fullyrðinga í skoðanastríði þar sem rök og staðreyndir skipta ekki máli. Ég hef heyrt þetta kallað róttæka rökhyggju en það eina róttæka sem ég sé við þetta er að rökin skipta ekki máli.