149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

störf þingsins.

[10:21]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Víða úti á landi er mikill og viðvarandi skortur á læknum, svo ég tali nú ekki um sérfræðilækna. Hinn mikli og viðvarandi læknaskortur víða úti á landi hefur skapað einhvers konar vertíðarstemmningu þar sem dugmiklir læknar koma við í mýflugumynd og taka tarnir og mætti líkja komu þeirra við komu vorskipanna hér fyrr á öldum þar sem spenntir íbúar flykktust að þegar til þeirra sást.

Bráðaþjónusta víða á Suðurlandi er afar bágborin og á stundum mjög langt í hana, eins og dæmin sanna í Skaftafellssýslum. Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur margoft ályktað um læknaskort og að læknaþjónustu væri ábótavant í Eyjum. Þannig hefur bæjarstjórnin ályktað um skort á sónarþjónustu fyrir verðandi mæður, skurðlæknaþjónustu, sjúkraflugsþjónustu, bráðaþjónustu og augnlæknaþjónustu.

Nýlega fékk ég áskorun frá heimilisfólki á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Það hélt íbúafund í síðustu viku og skorar á stjórnvöld að bæta úr augnlæknaþjónustu í Vestmannaeyjum. Þau segja að augnlæknir hafi ekki komið lengi til Vestmannaeyja og hafa áhyggjur af ástandinu. Þau segja að það kosti ómælt umstang og erfiðleika að þurfa að ferðast til þess eins að fá jafn sjálfsagða þjónustu og augnlæknaþjónusta er.

Loks skorar heimilisfólkið á þá sem ábyrgð bera á heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni að bæta úr því þarfa máli sem allra fyrst.

Herra forseti. Við verðum að standa okkur betur fyrir gamla fólkið í landinu. Það á ekki að þurfa að ferðast yfir sjó og land til að fá jafn sjálfsagða þjónustu og augnlæknaþjónustu.