störf þingsins.
Forseti. Mig langar að vekja athygli á svari ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn minni um rannsóknarleyfi og virkjanaleyfi. Þar koma fram ýmsar athyglisverðar upplýsingar. Þetta er málaflokkur sem við höfum rætt töluvert í þessum þingsal.
Það kemur í ljós í þessum svörum að tröllasögur um að hér sé verið að sækja um leyfi til að virkja hverja einustu smásprænu með smávirkjunum, gott ef ekki átti að sjá öllum heiminum fyrir rafmagni þannig, eru einmitt það, tröllasögur. Hér sést svart á hvítu að fjöldi virkjunarleyfa síðustu tíu ár til smávirkjana eru mun færri en rætt hefur verið um.
Hins vegar er athyglisvert að velta fyrir sér, eins og ég hef oft gert í þessari pontu, hvernig smávirkjunum er komið fyrir hjá okkur og hvort nægilega vel sé um þær búið. Að miða smávirkjanir við 10 megavött er að mínu viti, eins og ég hef margoft komið inn á, allt of mikið afl. Ég hef talað fyrir því að það eigi að lækka það niður í kannski 1–2 megavött.
Þá er athyglisvert að lögin heimila að það séu gefin út rannsóknarleyfi vegna virkjanakosta sem ekki hafa sætt mati samkvæmt rammaáætlun. Það er í lögum að það sé heimilt að stunda þær orkurannsóknir vegna virkjunarkosta í biðflokki. Ég set, forseti, mikið spurningarmerki við þetta því að eins og við vitum er rammaáætlun tæki okkar til að flokka svæði, um hvort við viljum að þau séu vernduð fyrir orkunýtingu eða nýtt. Þar finnst mér að það sem er í bið sé raunverulega í bið en ekki þannig að menn séu farnir af stað og séu að hugsa sér að virkja (Forseti hringir.) áður en að kostir séu flokkaðir sem nýtingarkostir.