störf þingsins.
Herra forseti. Í gær sneri ég heim eftir fundaröð á vegum Evrópuráðsþingsins í París og mér finnst við hæfi að upplýsa þing og þjóð um störf þessa mikilvæga þings undir liðnum störf þingsins.
Í fyrsta lagi bar margra mánaða vinna okkar hv. þm. Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur þann mikilvæga árangur að umsókn öfgahægriafla um stofnun flokkahóps innan Evrópuráðsins var hafnað. Henni var hafnað á þeim grunni að hópurinn uppfyllti ekki skilyrði um virðingu fyrir grunngildum Evrópuráðsins. Hefði umsóknin verið samþykkt hefði flokkurinn öðlast völd, fjármagn og viðurkenningu Evrópuráðsins á því að þau mannfjandsamlegu viðhorf sem þessir hópar dreifa út um allar koppagrundir samrýmdust þeim sömu gildum um mannréttindi, lýðræði og réttarríki. Það er að sjálfsögðu ekki rétt. Þetta var söguleg ákvörðun, herra forseti, og sýnir að hægt er að hafna ásókn hægri öfgaöfl afla í völd þegar sú ásókn byggist á fölskum forsendum.
Í öðru lagi fundaði laga- og mannréttindanefnd Evrópuráðsþingsins, nefndin sem ég stýri, um ýmis mikilvæg mál, þar á meðal um aukna vernd uppljóstrara, sem Evrópusambandið hefur nýlega samþykkt, töluvert sögulega ákvörðun líka, og um hvernig við ætlum að hvetja öll ríki Evrópuráðsins, Ísland þar með talið, til að samþykkja svipaða staðla og ganga jafnvel lengra í vernd á uppljóstrurum og víkka út það hugtak. Loks töluðum við um mikilvægi gervigreindar og mikilvægi þess að Evrópuráðið beiti sér strax í því að setja reglur um gervigreind sem tengjast mannréttindum. Þar er vissulega úrbóta þörf, enn sem komið er.
Loks var ég á fundi þingskapanefndar Evrópuráðsþingsins þar sem mikilvægar ákvarðanir voru teknar sem gera það mjög líklegt að Rússland snúi aftur til Evrópuráðsþingsins og muni að vörmu spori taka þátt í störfum þess á ný. Það var mjög ánægjulegur árangur því að ekki hafa ráðherrar ráðsins gert það sem til þarf til þess að Rússar snúi til baka (Forseti hringir.) þannig að við þingmenn tókum ábyrgð.