149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

störf þingsins.

[10:32]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég tók saman í Fréttablaðinu í dag nokkur af þeim góðu málum sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram á þessu þingi, sem fer mögulega einhvern tímann að sjá fyrir endann á. Ég komst ekki yfir að nefna þau öll og mun ekki heldur gera það í þessari stuttu ræðu en mig langar þó að nefna nokkur af því að mörg af þeim málum — og öll — hafa áhrif á heimili og atvinnulíf, á fólkið í landinu, og ég vona að einhver af þeim fái framgang á þessu kjörtímabili, helst öll.

Tvö frumvörp sem fela í sér mikla réttarbót hafa nú þegar verið samþykkt, annars vegar breytingar á lögum um nálgunarbann og hins vegar málið sem við samþykktum í gær, sem bætir stöðu barna sem missa foreldri. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa líka lagt fram frumvörp um skattalækkanir, m.a. um lækkun erfðafjárskatts að hluta til niður í 5%. Þarna ráða auðvitað m.a. sanngirnissjónarmið, enda hafa verðmætin sem mynda þann skattstofn verið skattlögð áður.

Einnig liggja fyrir tvö frumvörp um afnám stimpilgjalda, sem ég hef oft rætt. Annað frumvarpið er mitt eigið um afnám stimpilgjalds einstaklinga við kaup á íbúðarhúsnæði en hitt er frá hv. varaþingmanni Teiti Birni Einarssyni um afnám stimpilgjalda á stærri skipum, sem eru eina atvinnutækið sem enn ber stimpilgjald.

Önnur mál sem hafa áhrif á fasteignaverð eru t.d. frumvarp Óla Björns Kárasonar sem felur í sér fulla endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu iðnaðar- og verkamanna við húsbyggingar. Þá hafa þingmenn líka lagt fram frumvörp sem ætlað er að styðja við fráveituframkvæmdir sveitarfélaga, sem mikil þörf er á, að auðvelda iðnnemum að sækja háskólanám, að endurgreiða virðisaukaskatt til góðgerða- og félagasamtaka og einnig að auðvelda kynslóðaskipti í atvinnurekstri og um lagningu vegar við Teigsskóg.

Svona gæti ég haldið áfram en öll málin eiga það sameiginlegt að þau styrkja innviði samfélagsins og skilja meira eftir hjá fólkinu í landinu. Þannig eigum við að starfa og munum starfa áfram.