149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

um fundarstjórn.

[10:37]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég kem hingað upp til að leita leiðsagnar forseta vegna þess að ég er svolítið ringluð akkúrat núna. Það vill svo til að þingmenn Pírata hafa tvisvar sinnum verið stöðvaðir í miðri ræðu vegna þess að þeir hafa beint orðum að hv. þingmönnum sem hafa ekki haft tækifæri til að verja sig í kjölfarið.

Nú hafði ég ágæta ánægju af því að hlusta á hv. þm. Guðmund Andri Thorsson tala áðan en ég heyrði ekki betur en að sú ræða hefði öll snúist um einn annan hv. þingmann sem einmitt fékk ekki tækifæri til að svara fyrir sig. Mig langar bara að leita leiðsagnar hæstv. forseta um hvenær það er leyfilegt og hver munurinn sé á ræðu hv. þm. Guðmundar Andra Thorssonar og þeim ræðum þingmanna Pírata sem voru taldar óviðeigandi. Mér þætti gott að það væri bara skýrt hvað má og hvað má ekki segja um aðra hv. þingmenn án þess að þeir fái tækifæri til að svara fyrir sig og án þess að vera stöðvaðir í miðri ræðu af hæstv. forseta. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)