149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

um fundarstjórn.

[10:39]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti efast um gildi þess að fara í samanburð af því tagi sem hv. þingmaður nefndi hér. Hv. þm. Guðmundur Andri Thorsson lagði með mjög skemmtilegum og skáldlegum hætti út af blaðagrein sem reyndar annar stjórnmálamaður hafði skrifað og kom með sínar hugleiðingar í því sambandi. Hann beindi engri spurningu til hv. þingmanns eða átti orðastað við hann á þeim forsendum að eðlilegt væri að hann væri til staðar.

Auk þess skiptir máli hvernig orðum er beint að öðrum þingmönnum (Gripið fram í.) þegar það er metið hvort það sé viðeigandi að viðkomandi hafi ekki verið aðvaraður og honum gefinn kostur á að vera til staðar og svara fyrir sig.

Ef hv. formaður þingflokks Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, er að láta að því liggja að forseti sé hlutdrægur í störfum sínum sárnar forseta það og hann mótmælir því.