149. löggjafarþing — 117. fundur, 5. júní 2019.
um fundarstjórn.
Forseti. Þetta er allt til á upptöku hvernig forseti dæmir í málum um málfrelsi þingmanna í þingsal. Við munum bara fara yfir það, klippa það saman og fara yfir þær reglur. Það gengur ekki að það sé hlutdrægni þegar kemur að þingmönnum og þeirra tjáningarfrelsi. Ef forseta sárnar að heyra að það sé möguleiki á því að hann fari ekki rétt með — það eru allir mannlegir. Í það minnsta eru allir mannlegir og forseti á bara að þakka fyrir það ef honum er bent á að hann gæti mögulega ekki jafnræðis.