um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Mér þótti leiðinlegt að sjá hvernig var farið með það að trufla ræður hv. þingmanna Pírata, m.a. mína ræðu á sínum tíma þegar ég var í viðræðum við hæstv. forsætisráðherra. Sömuleiðis gerðist það í nefnd nýlega, ég ætla ekki að erfa það við virðulegan forseta en upp á síðkastið hef ég fengið það á tilfinninguna að það sé minni þolinmæði fyrir því að hv. þingmenn Pírata kvarti undan hlutum hér á þinginu. Það gengur náttúrlega ekki.
Það sem ég kom þó aðallega upp til að velta fyrir mér, og bið virðulegan forseta um að svara ef honum þykir það einhver misskilningur af minni hálfu, er: Skiptir máli að mati virðulegs forseta hversu skemmtileg ræðan er eða hvort virðulegum forseta líkar vel við hana? Ég skildi það þannig, ég trúi því ekki að það sé réttur skilningur. Ég bið virðulegan forseta um að skýra það aðeins betur vegna þess að mér finnst það enn þá óskýrt. (Gripið fram í.)