149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

um fundarstjórn.

[10:41]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forsetar sem á stóli eru hverju sinni eru oft í vanda staddir varðandi það hvenær og hvenær ekki er ástæða til að gera athugasemdir við málflutning hér í salnum. Það er engin einföld regla til í þeim efnum og forsetar eru að sjálfsögðu mannlegir. Það hefur oft reynt á það að undanförnu í tilviki margra forsetanna hvort og þá hvenær sé ástæða til að biðja menn að gæta orða sinna eða biðja menn að beina ekki orðum til þingmanna sem ekki eru í aðstöðu til að svara fyrir sig o.s.frv. Þetta höfum við forsetar oft rætt á fundum forsætisnefndar og reynum okkar besta í þeim efnum, að ég tel.

Forseti hafnar því að hann sé hlutdrægur í störfum sínum. Forseti hafnar því algerlega að það skipti máli úr hvaða flokki menn koma þegar forseti eða forsetar yfir höfuð reyna að halda uppi góðri reglu á fundum Alþingis eins og þeim ber lögum og stjórnarskrá samkvæmt.