149. löggjafarþing — 117. fundur, 5. júní 2019.
um fundarstjórn.
Forseti. Forseti segist hafna því að vera hlutdrægur í þessu máli. Það geta allir verið hlutdrægir, það er bara mjög mannlegt að vera hlutdrægur. Það eru allir með einhvern „bias“, ákveðna hlutdrægni, og það sem er mikilvægt þegar kemur að því er að átta sig á henni. Ef manni er bent á það á maður að hlusta, fara yfir sínar gerðir og athuga í framhaldinu hvort það geti mögulega verið einhver hlutdrægni í gangi og svo bara þakka fyrir þá ábendingu.