149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:40]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ég vil beina sjónum að öðru, þ.e. fyrirvörunum. Nú hafa ýmsir, eins og tveir ágætir menn sem hv. þingmaður vísaði til áðan, Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi hv. þingmaður og hæstv. ráðherra, og Arnar Þór Jónsson, sagt að fyrirvararnir sem séu gerðir við þetta mál séu einskis virði. Svo eru aftur á móti aðrir eins og hv. þm. Silja Dögg Gunnarsdóttir sem hefur lýst því þannig að það sé ekki einungis að Framsóknarflokkurinn sé með belti og axlabönd í þessu máli heldur sé hann einnig í smekkbuxum, með álímdan hártopp og í nýjum skóm. Það er spurning hvað sú múndering dugar fyrir dómstólum. Ég hefði bætt við trúðsnefi en allt í lagi, það er smekksatriði.

Ég vil fara yfir það með hv. þingmanninum hvað fyrirvarar segja sem til er stofnað með þeim hætti og lýst þannig. Standast þeir fyrir dómstólum að mati hv. þingmanns? Eða mun málinu verða vísað frá á þeim grundvelli? Munu menn hlæja að þeim fyrirvörum hátt og lengi og henda málinu út og við Íslendingar tapa því?

Þá kemur að öðru sem við gætum tekið upp og ég tek kannski upp í ræðu á eftir og það eru mögulegar skaðabætur sem við gætum orðið fyrir. En fyrst af öllu langar mig að biðja þingmanninn um að gefa mér álit sitt á fyrirvörunum og þá sérstaklega miðað við lýsingu Framsóknarflokksins á sjálfum sér og fyrirvörunum og hvort þingmaðurinn telur að þetta gæti hjálpað okkur eða verið okkur til gagns í hugsanlegum málaferlum um þennan orkupakka og það valdaafsal sem við teljum að sé þarna en þeir menn segjast vera með gilda fyrirvara fyrir.