149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:45]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Við eigum náttúrlega að vara við því ef mögulega eru einhver stjórnskipuleg álitaefni. Við sem þingmenn höfum svarið eið að stjórnarskránni varðandi það. Í stjórnarskránni segir að við skulum gera það. Í þingskapalögum segir hvernig það er gert og við höfum öll skrifað undir það. Þannig að ef það eru álitaefni varðandi stjórnarskrána þurfum við að sjálfsögðu að skoða það vel.

Sjálfur hef ég nálgast málið þannig í gegnum tíðina að ég hef látið stjórnarskrána njóta vafans. Ef það eru álitaefni hef ég ekki farið eftir því sem ráðuneytin segja um hvernig þetta hafi verið gert áður, þetta sé ekki það mikið framsal o.s.frv. Ég hef sagt: Já, en þó að það hafi gerst áður þýðir ekki að við þurfum að fara umfram það. Það hefur verið mín nálgun. Það hef ég sagt í þingflokki mínum og bent á það þegar ég hef spurt um stjórnskipulega fyrirvara, þá verð ég að fá það á hreint hvort það sé samkvæmt túlkun minni á því, er þetta samkvæmt þeim fyrirvara sem ég vil gera.

Þannig að mig langar að spyrja hv. þm. Ólaf Ísleifsson hver hans skilningur sé á því að fara að stjórnarskrá. Hversu langt megum við ganga án þess að afsala okkur fullveldi? Getum við tekið þátt í NATO? Getum við tekið þátt í Sameinuðu þjóðunum? Getum við þá ekki tekið þátt í EES-samstarfinu? Ef það eru stjórnskipuleg álitaefni, verðum við að hafna öllu því sem kemur frá EES hvað það varðar? Þá veit ég að ég get örugglega ekki setið í ríkisstjórn ef ég ætla að gera það, ef ég ætla að fylgja sannfæringu minni hvað það varðar. Þá verður líklega þrýst á mig að greiða atkvæði með málum þó að það sé stjórnskipulegur fyrirvari.

Þannig að mig langar að spyrja þingmanninn um túlkun hans á stjórnarskránni og þingsköpum um að halda stjórnarskrá. Er hann heill í sannfæringu sinni og gagnvart atkvæðagreiðslu hér í þinginu þegar kemur að stjórnskipulegum fyrirvara?

(Forseti (SJS): Þá svarar andsvari hv. 10. þingmaður …)

Afsakið, ég ætla örlítið að skjóta inn í, því að ég á smátíma eftir. Það að ESA geti sektað íslenskan lögaðila beint og það þarf ekki að fara í gegnum neina stofnun — myndi hv. þingmaður segja það væri umfram þessi skilyrði í stjórnarskrá?

(Forseti (SJS): Forseti ætlaði alls ekki að trufla hv. þingmann, en forseti fékk á tilfinninguna að hann hefði lokið máli sínu.)