149. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:07]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Örlítið áfram með þær vangaveltur sem hv. þm. Jón Þór Ólafsson kom hér fram með, sem eru vitanlega mjög mikilvægar. Fram kemur á bls. 36 í áliti þeirra Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts, að það leiki verulegur vafi á því hvort valdframsalið standist stjórnarskrá.

Nú spyr ég hv. þingmann hvort það sé þá ekki mikilvægt að skoða enn frekar, ekki síst í ljósi þess að við vitum núna um og höfum séð glitta í orkupakka fjögur, sem búið er að leggja fram og búið að samþykkja hjá Evrópusambandinu og bíður umfjöllunar og innleiðingar EES-ríkjanna. Er þá ekki mikilvægt að við sjáum samhengi milli þessara tveggja orkupakka, hvort áframhaldandi valdframsal er fyrirhugað í orkupakka fjögur, og þegar valdframsalið er orðið það mikið, saman komið í orkupakka þrjú og fjögur, verðum við að stoppa og staldra við?

Mér finnst mjög sérkennilegt að þingmenn stjórnarflokkanna, þeir sem eru fylgjandi þessu máli, skuli ekki vilja sjá hvaða áhrif orkupakki fjögur hefur, vegna þess að þeir hafa hann fyrir framan sig líkt og við öll hin. Hann er á netinu hjá Evrópusambandinu.

Síðan langar mig að spyrja hv. þingmann út í annað. Nú hefur fyrrverandi hv. þm. Frosti Sigurjónsson bent á það og reynt að opna augu manna fyrir því hvernig raforkuverð getur hækkað vegna áhrifa frá þriðja orkupakkanum og hefur fært góð rök fyrir því. Þau eru einfaldlega þannig að ef erlendur aðili reisir orkuver á Íslandi ber honum að fá að tengjast innlenda orkunetinu. Og ef það er ekki tilbúið þarf að byggja það upp fyrir hann.

Man þingmaðurinn eftir því að komið hafi fram hverjir borga brúsann þegar því er þannig háttað að styrkja þarf innviðina ef erlendur aðili (Forseti hringir.) vill reisa hér orkuver og selja á Íslandi? Hver fær að tryggja að hann komist inn á netið eftir innleiðingu orkupakkans?